Monday, May 21, 2012
What's on!
Minimize


Hlekkir
Minimize


Styrktaraðilar
Minimize

Sími: 895 5448
WWW.SMAVERK.COM



Fréttir
Minimize

14

 Við Einir gerum alltaf eitthvað skemmtilegt í kringum afmælis dagana okkar og minn um síðustu helgi var einginn undantekning.

Einir var með tilþrif á tilþrif ofan og fór hreinlega á kostum og ég er bara rétt að ná mér eftir allar bilturnar og þúfna tilþrifinn

takka fyrir renslið GAMLI  !!!!!!!!!!!!!!!!!!!!

ps það er skemmst frá því að segja að ég er hættur við að selja 300 hjólið ég tók það í gegn og hreinsaði blöndung og setti í það platínu kerti smurði og tók á því yfirhallingu og það er eins og nýtt og ekki til sölu  konungur þúfnanna kveður !!!!


08

Vegna fjölda áskoranna ætla ég að henda inn 2 myndböndum frá túr sem við fórum í sumar ég bubbi og gunni og ætluðum yfir á vaðinu sem er venjulega stígvéla færi en eitthvað hafði dýfkað í ánni og því fór sem fór . En við komumst samt yfir á endanum og tókum hrikalega á því og á köflum bar aðeins á bláum lit á hörundi G.H í mestu ófærunum .

Svo var komið að mönnunum sem hafa aldrei farið yfir á nema undir yfirborðinu og þetta var eingin undantekning og  í lokin þurfti 3 mannin til að bjarga gasinu frá drukknun .

það eru til mörg álíka góð og svæsnari myndbönd frá sumrinu sem ég set kanski inn bráðlega ef menn hafa áhuga Konungur Þúfnanna kveður í bili ..................................


05

Ég hendi inn nokkrum myndböndum af mér og Eini í brautinni á laugardaginn ííiiíiiiíi´íhahhhahaaaahah

 


09

Já nýja 300 hjólið frá Husaberg er mjög flott og þeir eru smá saman að breita lúkkinu og þau verða sennilega bara eiguleg á endanum

En í dag eru það nánast bara liturinn á plöstunum sem skilur að Ktm og Husaberg .Hjólið er með stórum endurotank brembo bremsum keihin blöndung og svo mætti lengi telja en mesta breytinginn er gula stellið og það passar bara vel við hjólið.

Annar besti hardenduro ökumaður norðulands( Gunni H) hitti fyrrverandi hardenduroökumann( Villa þorra )á götu um daginn og Villi  sagði "hhheeeeee ertu búinn að sjá nýja berginn" og togaði létt í sokkana " hann  er kominn með nýju stelli og ég verð fertugur ánæsta ári og er að spá í að fá mér svona hjól í tilefni þess eeehhhehee.

Þannig að það er ljóst að flestir eru að færa sig yfir í 2 stroke deildina og í hardið er það eina sem virkar

En að mér er það að frétta að Ktmið mitt 300 exc  2006 er til sölu og er falt með öllu á 550.000kr . Það er  fullt af myndum af því á síðunni og ef menn hafa áhuga þá er bara að hringja í 8955448 og landa þessu harðasta tæki landsinns. ATH hjólinu fylgir 13 lítra tankur og skott stírisdempari , ný tannhjól og keðja og ný kúpling,karfa og lok en einnig er glænýr stimpill í því ........konungur þúfnanna kveður .....


08

Ég fann flotta kynningu á túbunni af keppninni en strákarnir okkar eru einmitt að keppa þar þessa dagana og við óskum þeim góðs gengis

 


08

 Ég fékk ábendingu frá Eini um þenna Gasmann og hann er að taka allt út úr 250 Gasinu .

 

 


15

Mikki kom norður og við skelltum okkur í 2 gullfallega túra í vikunni sá fyrri var farinn á Hjalltadals slóðanum  og var mjög skemmtilegur .

Mikki er í fjærþjálfun í Hardenduroi og gengur vonum framar hann stóðst öll test um helgina nema steinabeðið en Heiða hafði bannað honum að æfa sig í því heima fyrir þannig að honum vantaði smá æfingu .

 

þetta gekk eins og í sögu og allir glaðir þegar nóttin stittist í annan endan .

 

Seinni túrinn skelltum við okkur í Hálsaskógin og litum á slóðana þarog urðum ekki fyrir vonbrigðum þetta var bara allur pakkinn

slóðinn er sumstaðar orðinn að þúfna karga og var þá nettur burður til að komast áfram í gegnum það

 


03

Loksinns hardenduro rensli með Einsa frá grenvitsh . Við Einir rendum á leinistaðinn á föstudagskvöldið og urðum ekki fyrir vonbrigðum það hafa verið miklar sviptingar í enduro hjólunum okkar síðasta mánuðinn og þau eru loksins komin saman aftur og eru bæði kominn með nýja stimpla og mitt er með nýrri kúplingskörfu og öllum pakningum og legum sem hægt var að skipta um í þetta skiptið .

 

Það er ekkert sem toppar það að taka einn lötur hægan og hrikalega krefjandi Enduro túr í góðum félagskap og ekki spillir að hafa einn fúlskeggjaðan Gasmann með í för ..

hjólin eru bara geðbiluð þau eru svo góð og í þessum 3 tíma túr eiddi hvort hjól undir 2 lítrum af bensíni og það er lectroninum að þakka og svona eiðslu tölur hef ég ekki kynnst áður .takk fyrir túrinn Einir.........

Ps ég tók smá bling á heddið og nokkur lok í leiðinni  og skipti um hedd bolta .....konungur þúfnanna kveður.......


22

Ég var rétt í þessu að finna myndir af mótinu á Akureyri inn á motosport.is endilega fara inn á þessa síðu það eru líka flottar fréttir á henni og umfjöllun um mótið góða skemmtun 


19

Um síðustu helgi var frábært mót í boði KKA á akureyri. Það fór allt framm í mesta bróðerni og keppendur voru til sóma og allir ánægðir eftir báðar umferðir ég var sjálfur í racepoolice og ég heyrði kallað á eitt víti í báðum umferðum sem segir manni að brautin var það skemmtileg að það datt ekki nokkrum manni í hug að svindla og er þessi breiting að mínu skapi .

Brautin var lögð af sönnum snillingum og ættu þeir að leggja allar brautir á íslandi hér eftir ef ekki erlendis líka. Allir komu með góðaskapið og ég hef ekki skemmt mér svona vel lengi við að toga menn og konur upp úr drullupittum og einnig við að horfa á kára bjögga og bjarka aka brautina en það var alveg magnað að horfa á þessa menn að öllum öðrum ólöstuðum

Það er mikill fengur fyrir KKA að hafa menn eins og Gunna H ,Stebba Gull ,Árna grant ,Sigga b , Sidda , Unna  , Bjarna ,Steina, Eika rauða , og alla sem mættu og ég er að gleyma og það væri ekki hægt að halda svona gott mót ef ekki væru góðir sjálfboðaliðar i klúbbnum Ég vil þakka fyrir mig og segi að það eru forréttindi að hafa starfað á svona góðu móti .

ps aðeins einn maður komst ekki brautina sem var annars greiðfær en sá maður var Steini Kawazaki en hann hafði ekki brekkuna upp á nýja tippin en þess skal getið að hann var í racepolice í þetta skiptið þannig að hann getur ekki kært keppnisstjóra fyrir ófæra braut  konungur þúfnanna kveður ............


16

 Ég skrapp í gærköldi til að skoða brautina og hún er alveg geggjuð fullt af brekkum margar leiðir til að velja léttar og þungar og bara flott flæði í henni og gleði

Ég fór bara á trialinu þar sem 300 hjólið er enn þá frá eftir að ég mölvaði kúplingskörfuna og ég pantaði hana hjá jóa í próxsport og eftir 5 vikna bið hefur ekkert til hennar spurst og þar með er öll þjálfununin frá áramótum farin í vaskinn og ég verð bara í racepolice um helgina og ég vil þakka Jóa fyrir reddinguna (not) og mæli með að menn panti hjá honum ef þeir hafa sumarið fyrir sér til að bíða eftir varahlutum . 

En sem sagt ég pantaði svo körfuna hjá kalla en hún kemur á mánudaginn og það sýnir sig að það er best að versla bara við umboðið þegar manni vantar eitthvað þó að það sér örlítið dýrara . sjáumst um helgina. konungur þúfnanna kveður r!!!!!!!!

 Ps  mér áskotnaðist þetta fallega hjól og það er til sölu um er að ræða yamaha yz 250F 2009 nýtt hjól og aldrei verið sett í gang er til í að láta það á 1090.000 en það má líka bjóða í það  eins kæmi til greina að taka upp í það krakka hjól fyrir svona 9 ára stelpu eða eitthvað ktm á verðinu kringum 300.000 endilega að hringja og kanna viðskipti í síma 8955448 Elvar ..........


15

 Um næstu helgi verður haldið stæðsta og best útfærðasta enduro keppni allra tíma í torfadal ofan Akureyrar , en Stæðsti klúbbur landsinns KKA mun þar bjóða upp á hrikalega flott svæði til enduro aksturs.

Til fjölda ára hefur KKA haldið þetta mót og fengið mikið lof fyrir og brautinn þetta árið er mjög krefjandi og hreint mögnuð og munu margir vatnskassar kveðja yfirbyggingu hjólsinns áður en yfir líkur.

Einnig er næsta víst að stimplar munu vera flúgandi um allar jarðir og það er ekki ráðlegt fyrir nema öflugusu ökumenn á leggja í skráningu í þessu móti 

mótið byrjar í bítið á laugardegi og stendur fram eftir degi ...Allir að mæta .........

 



Eldri fréttir
Minimize


Myndir
Minimize
Súlur elli steini einir 12 jan 10 048
Smelltu hér til að skoða myndaalbúm Team Silicon


Auglýsing
Minimize



Auglýsing
Minimize



Privacy Statement  |  Terms Of Use
Copyright 2009 by TeamSilicon.is
);