Monday, May 21, 2012
What's on!
Minimize


Hlekkir
Minimize


Styrktaraðilar
Minimize

Sími: 895 5448
WWW.SMAVERK.COM



Fréttir
Minimize

Entries for January 2011


30

við Einir tókum netta skreppu í víkurskarðið seinni partinn í dag. Við vorum báðir frekar spenntir því ég var með nýjan iKAT tengdan við kveikjuna og Einir er búinn að gera sér lítið fyrir og upp færa mótorinn sinn í 300 cc þannig að að við vorum báðir spenntir að prófa eitthvað nýtt. Til að gera langa sögu stutta virkaði spark magnarinn hjá mér alveg geðveikt og hjólið togar núna meira en 530R hjólið gerði og það á enginn séns í þúfna brekkunum í sumar. Einir var sáttur við mótorinn og hjólið höndlaði vel hjá honum en færið var ekki frosið því við vorum í 5 stiga hita.Í einni brekkunni rankað Einir við sér með stírisbúnaðinn í fanginu og þá hafði félagi hans eftir faðir vor KTM manna sem hljómar svo Kalli vor þú sem ert í mótó , helgist mitt hjól og tilkomi þitt ktm verði svo spól bæði í drullu sem og þúfum o.s.v  frammvegis  en tilkoma ræðunna var sú að KTM bilar ekki .........alldrei.........og ég held að

grenvíkingurinn sé að hugsa um að skipta um tegund því  það er mikklu skemmtilegra að keyra en að gera við   . 

Ég fullyrði að menn hafa ekki heyrt hreinna sound í 2 stróke hjóli til fjalla

 Nei nei nei veðurfræðingurinn frá grenvitsh með skiptilykil í viðgerðum á heiðinni  heheeeee

 eftir að við einir fengum blöndungana frammleiða hjólin bensín þannig að við erum að spá í að fara að selja allt sem kemur af þeim á 100 kall líterinn..

Neista magnarinn sem ég keipti hjá dóra í Nírto kemur á óvart hjólið er gangvissara startar fyrr og torkar meira þannig að ég mæli með þessu skrítna litla stikki. Konungur Þúfnanna kveður.....


11

Í gærkvöldi rendum við Einir í heimsókn til Bubba frænda að skoða hvernig upptektin á Gasinu gengi hjá honum og þar koma menn ekki að tómum kofanum þegar þrif og lagfæringar hjólum eru annars vegar. Hann er búinn að pólera gripinn hátt og lagt og jón í jhm myndi ekki bjóða mönnum upp á hreinni hjól þó að þau kæmu beint ú kassanum .

það er allt pólíhúðað sem hægt er að húða og þar er ekkert ó orginal drasl sem fær að vera í hjólinu nema frostlögurinn, bensínið og olían.

hann keipti öll hanföng ,keðju tannhjól hosur og slöngur í það og það er löðrandi í Auto sol og siliconi

Hjólið er 200 Gas Gas 2006 en Bubbi keipti það af knúti hefilstjóra fyrir um mánuði síðan . Það eru ekki allir sem leggja í að pólera afturgaffalinn á enduro hjólinu sínu en frændi var ekker að tvínóna við hlutina og póleraði allar skrúfur handföng og subfraimið líka og það er ekki blettur sem tuskan 1200 pappírinn og slípimassin hefur ekki farið yfir.


10

Ég og einir fórum á leynistaðinn í gær og stefnan var tekinn til fjalls og við ákváðum að skoða hvað mætti bjóða hjólunum í púður lækja fjalla þúfna brekku gilja grjót karga ríðingum og þessi túr hafði þetta allt.Við byrjuðum í þúfna karganum sem var fullur af púðri og svo var ekið í gilbörmunum á mörkum þess menska þegar því lauk var Einir grenjandi og kvartaði sáran undan hjólinu sínu en við frekari athugun var drengurinn að keyra hjólið á fullu innsogi sem veit yfirleitt ekki á gott í hardenduróinu. Einir smellti svo innsoginu niður og þá tók Gasið við sér og var hið ferskasta þá tók við púður sexion og þar rasskellti einir Konung þúfnanna í eitt skipti fyrir öll og þá var það ég sem var kominn í grenju gírinn fastur upp fyrir stíri og 200 metra radíus í kringum mig bara púður. Þegar ég hafði mig út úr púðrinu og komst til Einirs ókum við gríðarlegan þúfnakarga í 50 gráðu halla og nú voru hjólinn frosinn í 2 gír og byrjað að krapa í vatnskössunum og blöndungarnir orðnir að einum snjó köggli enda 13 stiga frost og 15 metrar á sek þannig að kuldinn var hrikalegur en það var alveg sama hvað við gerðum í þessum aðstæðum alltaf fóru hjólinn í gang og slógu ekki feilpúst hvort sem við vorum að þæfa í lágu torki eða á fullu gasi.

Eftir þetta fórum við að æfa 1 :80 snúning í hjarn hengjum en það þarf að æfa það eitthvað betur og vídeóin af þeim æfingu munu seint rata á netið þá fórum við að stökkva á stórgrítum og að æfa Blazusiakinn á báðar hendur og þessu lauk svo öllu saman með gullfallegum púngaprjóns æfingum og stunt spirnu með tví kúplingu . Það voru enhverjir boðnir með en hreinlega höfðu það ekki þegar þeir heyrðu leiðarlísinguna á túrnum . Því miður voru fáar myndir teknar í þessu ferðalagi vegna anna myndatökumannsinns við stírið takk fyrir túrinn Einir....Konungur þúfnanna kveður að sinni ..................

 


07

Það var bankað að dyrum hjá mér í dag og ég fór til dyra en trúði ekki alveg mýnum eigin augum þegar ég sá hver stóð fyrir utan full gallaður en þar var enginn annar en bubbi frændi og reiðskjótinn hans var forlátaTrialhjól stífpólerað . Já það var gaman að sjá drenginn á lífi og mjög óvænt að hann riði um á trialinu en það er um 1 meters púður í götunni minni .

Ps. spurning um að útnefna Harðasta trial mannn landsinns ?????

 


07

 Hjá KKA er alltaf farinn víðfrægur túr á gamlársdag hvernig sem viðrar og hafa þessir túrar verið skrautlegir í gegnum tíðina en alltaf gengið vel . Yfirleitt er ekið á vaðlaheiðinni og þar í kring og þetta árið var ekið í hrossadalnum og á heiðinni norðanverðri.Það var góð mæting og nokkur andlit sem sáust síðast á hjóli í hittifyrra menn eru oft með kakó meðferðis og taka menn frekar með sér kakóið heldur en bensínið á hjólinn en fyrir nokkrum árum varð gauti möller bensínlaus í bíldsárskarðinu í byrjun túrs en gárungarnir sögðu að hann hefði verið með fullan bakpoka af kakó meðferðis.Í ár var ágætis hjarn og náðu menn nokkrum brekku keppnum og tilþrifum í giljunum.Annars er það að frétta að KKA fékk flottan styrk frá samherja á dögunum sem kemur sér vel til uppbyggingar á þessum frábæra klúbbi Konungur þúfnanna kveður.....

Myndirnar er fengnar að láni hjá Stebba Gull það má sjá fleiri myndir á facebook síðunni hans


06

sagan segir að gunnar hákonarsson sé hættur í sleðamennskunni og hafi fest kaup á suzuki fjallajeppa og að hann sé að hækka hann upp og gera hann kláran fyrir komandi átök . Það náðist spy video að karlinum í leirutjörninni á dögunum við æfingar en hann keppti einmitt á þessari sömu tjörn í fyrra en þá var hann á sleða.......


05

Ég gleymdi myndinni af nýja kælinum sem ég smíðaði í ktmið en hann kom bara vel út og magnið af kælivökva jókst  um ca 1/2 lítra og kælirinn var sem sniðinn fyrir púðuraksturinn svo er bara að sjá þegar maður ekur eingöngu í hjarni í botni hvort hann þurfi að vera stærri en það allavega sauð ekki á hjólinu í mestu átökunum.


05

Nú ég fékk að heyra það í gær að það væri enginn að hjóla þessa dagana og menn væru ekki komast neitt á hjólum í þessu tíðarfari en ég tel okkur eini vera búinn að afsanna að það sé ekki færi til fjalla fyrir hjól og við einnig búnir að hjóla 3 af fyrstu 5 dögum ársinns sem verður að teljast gott og jafnvel betra en margur snjósleða hommin getur státað af þessa dagana . Ég hendi hér með inn nokkrum klippum þessu til stað festingar og segi í leiðinni geri margur mottu baldurinn betur óver end át konungur þúfnanna kveður...........

 

 


03

Ég skrapp einn míns liðs upp á Súlur að morgni 1 janúars 2011. Færið var ágætt en svikullt á köflum en ég hafði það á toppinn.Það voru nokkrir á hjólum í baráttunni við hjarnið en flestir hjólamennirnir voru í slagsmálum við höfuðverk gærdagsinns.


 

Við Einir rendum svo í gær á tindinn líka og það var meiri barátta mikklu linara og hitinn kominn í 7 gráður en svo spáir 10 stiga frosti á miðvikudaginn og þá verða heimsmet sleginn í röðum .

Væri kanski málið að skella á litlu innanfélagsmóti KKA og halda fjalla rall sem sagt startað í fálkafelli hlaupandi start og svo hver er fyrstur að ná í flagg upp á siðri súlur og koma því niður eftir en það yrði flagg á hvern keppanda þannig að það yrði reis niðureftir líka ... hvað segja menn við þessari hugmynd. Eru einhverjir til í þetta ...



Eldri fréttir
Minimize


Myndir
Minimize
husaberg kynning 005
Smelltu hér til að skoða myndaalbúm Team Silicon


Auglýsing
Minimize



Auglýsing
Minimize



Privacy Statement  |  Terms Of Use
Copyright 2009 by TeamSilicon.is
);