Monday, May 21, 2012
What's on!
Minimize


Hlekkir
Minimize


Styrktaraðilar
Minimize

Sími: 895 5448
WWW.SMAVERK.COM



Fréttir
Minimize

17

Nokkur orð um heimasíður hjólaumboða og dóma mótorhjóla á íslandi. En þannig er mál með vexti að við sem búum úti á landi þurfum oft að reiða okkur á netið til að skoða ný hjól ,varahluti,eða aukahluti fyrir hjólasportið  og þá fer maður inná heimasíður umboðanna og þá mætir manni Zahara eiðimörkin í upplýsingum eða úrvali því það virðist enn þá vera árið 2007 í borginni þegar menn seldu svo mörg hjól og aukahluti yfir borðið að  menn tóku ekki síma eða uppfærðu ekki heimasíðurnar sýnar. Tökum sem dæmi JHM www.jhmsport.is  þar henda menn sjaldan inn fréttum en þegar litið er á linkinn VÖRUR eða FATNAÐUR finnst ekkert sem sagt á heildina litið síðan fær síðan 4 að 10 mögulegum. Næstur í röðinni er hjóla frammleiðandinn KMT www.ktm.is þar henda menn inn fréttum annað slagið en sömu sögu er að segja um fatnað eða aukahluti og  er fullyrt á þeirri síðu að ktm verði orðinn stæðsti  hjólaframleiðandi árið 2007  sem sagt fyrir u.þ.b 3 árum síðan og dómurinn er sá sami og síðast  4 af 10 mögulegum . Næst í röðinni er Nítró www.Nitro.is þar er allt annað uppi á teningnum síðan ágætlega uppfærð vörur og annað er verðmerkt og bara ágætis síða í alla staði . Nítró síðan er lika ein af fáum umboðs síðum sem býður mönnum uppá smáauglýsinga kerfi gott og vel síðan fær 8 af 10 mögulegum.Yamaha er nú komið til Artictruks og er þar ágætis sýða yfir mótorhjól www.arctictrucks.is en upplýsingar um fatnað og aukahluti á þeirri síðu verða uppfærðir síðar og mér finnst menn ekki kanski hafa kinnt sér hjólin til hlítar þegar er td talað um Yamaha WR 250 sé  mjög léttbyggt hjól en blaut vigt á því hjóli er að detta í 135 kg sem sagt síðan fær 4.5 af 10 mögulegum .Á honda síðunni www.honda.is er lítið um fréttir á hjólum og ræður árið  2008 ríkjum og þar er sagt að honda ætli að girða sig í brók með 450 X fyrir árið 2008 . Sem sagt 2 ára gamlar upplýsingar en á síðunni eru reyndar verð á nokkrum  hjólum en þau eru td honda 125 R 2007  og er talað um einstakt Tilboð á því hjóli 695.000 en einstakt tilboð heillar mig ekki á 3 ára gömlu hjóli . þegar grúskað er í aukahlutum poppa upp misgóðar upplýsingar erlendis frá og verð á þeim hlutum eru víðsfjærri  íslenskum krónum síðan fær 3,5 af 10 mögulegum.Næstir undir hnífinn eru Suzuki www.suzuki.is þar eru engar fréttir af hjólum verðlistar eru frá 2008 og linkurinn fatnaður hefur ekki verið virkjaður enn þá ,já já síðan fær 3,5 af 10 mögulegum. Já ég þakka Unnari fyrir ábendinguna og held áfram að dæma nú er komið að MX sport www.mxsport.is þar er flest til fyrimyndar góðar og gagnlegar fréttir einnig eru allir hlutir verðmerktir og ágætis úrval síðan hlítur 8 af 10 mögulegum og mjakar sér upp að hlið Nítró síðunar á einkun.Síðast en ekki síðst er síðan www.pukinn.com þar eru settar inn fréttir af og til og vörur og varahlutir eru verðmerktir ágætlega en það vantar mikið af myndum við varahluti og  verð á hjól og mikið af upplysingum eru komnar til ára sinna en ekki sem verst , síðan fær 7 af 10 mögulegum .Ef ég hef gleymt einhverri glæsi síðunni þá endilega látið mig vita en ég verð að segja fyrir mína parta eru umboðinn með allt niður um sig í heimasíðu málum en það skal tekið framm að ég skoðaði eingöngu þátt mótorhjóla inni á þessum síðum og aukahlutum/ varahlutum  þeim tengdum...... Konungur þúfnanna kveður.......

 

PS .Svo er iðulega þegar maður pantar varahluti í pósti þá gleyma menn sem þú pantaðir hlutinn hjá að panta hlutinn að utan eða gleyma að setja hann í póst þetta er nánast regla en ekki undatekning.
 

Athugasemdir

Tjáðu þig... vertu fyrstur!

Skrifa comment

Name (required)

Email (required)

Website

CAPTCHA image
Enter the code shown above in the box below



Eldri fréttir
Minimize


Myndir
Minimize
silicon kvöld hjól steini 010
Smelltu hér til að skoða myndaalbúm Team Silicon


Auglýsing
Minimize



Auglýsing
Minimize



Privacy Statement  |  Terms Of Use
Copyright 2009 by TeamSilicon.is
);