Elvar Jónsteinsson skrifaði þann 02.04.2010 15:01
jæja við Helgi rendum upp í braut að kanna gripin hans helga og það gekk mjög vel utan þess að hjólið er leiðinlegt í gang heitt ,eins og að það fái ekki nóg bensín en við ókum brautina og ætluðum upp í fálkafell en þar drullaði Helgi í buxurnar og sagðist ekki komast lengra vegna mæði ( en þess má geta að Helgi varð íslandsmeistari í íshokký um síðustu helgi og þeir eru greinilega í flottu formi í hokkýinu strákarnir) en við vorum nákvæmlega 19 mín heiman frá og þangað sem helgi var off. En við ætlum að skreppa líka á morgun og ég verð með myndavélina með í för ef eitthvað skemmtilegt ber á góma...

