Elvar Jónsteinsson skrifaði þann 21.04.2010 19:14
Ég er búinn að aka töluvert í vikunni og við Einir skruppum með Helga la cunt í enduro brautina sem er öll að þiðna um þessar mundir. Helgi var að koma á þenna griðarstað enduro mansinns í fyrsta skipti og svæðið sveik ekki . Eftir um 20 mín var Helgi eins og sprungið silicon brjóst og hafði ekki neina lyst á íþróttablysum né lífinu sjálfu því hann var gerssaaammlleegga ooooooffffffffffffffffffff og blánaði á hörund um tíma og hafði einir á orði að þetta væri kanski komið nóg . En áfram var haldið og við keyrðum c.a 3/4 úr stóra hringnum og þá sagði Helgi þessa fallegu setningu þegar hann sá veginn aftur " ég hef ekki verið svona glaður síðan ég eignaðist barnið mitt ég helt að þetta væri mitt síðasta" svo var haldið heim á leið og allir sáttir við sitt en glaðastur var einir þar sem hann ók einu öflugasta 300 ktm hjóli á íslandi í fjærveru Gas Gas 250 .......

Svo fórum við helgi upp á mýrar í gærkvöldi og ókum á hjarni en þetta var lítið spennandi og ég er að verða nett þreittur á þessum hjarn akstri það er einfaldlega ekkert að gerast bak við stírið og lítið krefjand. Þetta er svipað að aka malarslóða eðan etthvað þaðan af verra!!.En við Helgi ókum í einn og hálfan tíma en gáfumst svo upp á leiðindunum og ókum heimleiðis.

Ég leit svo aðeins yfir 300 hjólið í gær og fann rifu á pakningu í vatnsgangi og reif motorinn strax og fékk pakningar hjá Kalla og skipti um pakkdós og legur í vatnsdælunni í leiðinni. Ég raðaði svo hjólinu saman aftur og setti lík sílicon hosur í allt vatnskerfið og sleit úr því vatnslásinn því það er hardenduro tíð frammundan og veitir ekki af eins mikilli kælingu og er í boði .Þannig að það er klárt í silicon túr í fyrramálið og þar verður ekkert ja vell bara hard og fyrstur til að skíta í hjálminn er aumingi og færa að þríf hjól félaganna. við verðum komnir uppeftir um 8 leitið og endilega allir að mæta og kynnast ógeði af vestu sort. Í fyrra kláraði benni berginn og kom hann heim undir einu mannsafli svo ég spái því að það verði engar húsaberg lufsur þetta árið en við skulum bíða og sjá ....Konungur þúfnanna kveður
