Elvar Jónsteinsson skrifaði þann 13.05.2010 08:54
já við toppuðum harða túrinn frá í fyrra og erum búnir að fara þann allra harðasta enduro túr sem farinn hefur verið á íslandi á Enduro hjóli . Meðreiðar menn mínir voru helgi og einir og þessi var fyrir allan peninginn grjótin voru á stærð við SCANIU VABIS og lætin aftan við stírið var eins og menn riðu doberman hundi með beisli .Við ókum bæði HELL S GATE og Stairway to heven og þar mátti engu muna að helgi tæki himnastigan alvarlega og sæi ljósið í allri sinni dýrð en menn verða að passa að fara út úr stiganum á réttum stað annars enda menn í stuði með guði. Og það er skemmst frá því að segja að helgi er kominn á Gas Gas toostróke 300 cc og erum við nú allir á 2-t hjólum og spádómur villa þorra rættist því ég seldi fergusoninn minn í morgunn og er mikil eftirsjá í honum en hann á bara ekki séns í 300 ktmið þó að hann sé góður en villi þorri fór eitthvað öfugt í dæmið sitt því hann seldi 300 hjólið sitt og nú verður gaman að sjá á hverju kallin endar í hardenduróinu í sumar . Takk fyrir túrinn strákar .Konungur þufnanna kveður.........
