Elvar Jónsteinsson skrifaði þann 18.05.2010 00:45
Já blóðþyrstu hardenduro aðdáendur þið lásuð rétt föstudagskvöldið 28 maí verður haldinn hardenduro sýninginn Klofinn Mótor á félagssvæði KKA .Sýninginn felst í því að ekið verður í erfiðum aðstæðum á mörkum þess menska og menn verða tíma mældir með skeiðklukkum . Hver þátttakandi fær að reyna við þrautabraut tvisvar sinnum og gefur besti tíminn samanlagt af sér nafngiftina MAÐURINN MEÐ EISTUN. Já góðir lesendur það verða fljúgandi stimpilstangir vaðandi tvígengis fíla í hverjum drullupolli og heiftarleg aspest gufa af hverri kúpplingu sem kemur við sögu í þessari sýningu þú vilt ekki missa af þessu !!!!!!!!!!!.

Skráning í þessa fyrstu hardenduro sýningu hefst á morgunn í síma 8955448 og stendur framm á fimmtudaginn 27 maí og kostar ekkert . Í sýningunni verða menn á eigin ábyrgð og aldurstakmark er 18 ár og blöðrur undir 125cc verða ekki leyfðar ath allur annar auka búnaður er leyfður svo sem búningar ,GPS ,nagladekkinn sem finnur keppti á um árið ,trial hjól,konur, og stórir bensíntankar .Sýninginn hefst kl 20:00 og sýnendur sem hafa skráð sig eru beðnir að mæta kl 19:15 uppi á dippinum við púkabrautina . já það verður ekkert (hross countrý )á Akureyri 28 maí Konungur þúfnanna kveður að sinni

Eftir sýninguna geta menn komið með og pylsur og við KKA menn reddum nokkrum grillum og höfum gaman upp við félagsheimili KKA ef veður leyfir........