Elvar Jónsteinsson skrifaði þann 25.05.2010 23:18
Ég vildi bara minna fólk á Hardendurosýninguna á föstudagskvöldið á svæði KKA. Við erum byrjaðir í rólegheitum að byggja upp brautina sem verður sú skemmtilegasta sem hefur verið sett upp norðan heiða .Við ætlum að breyta sýningartímanum í kl 21:00 og keppendur verða að vera mættir kl 20:00 .uppi á dippinum við púkabrautina Það verður enginn svikinn af þessari sýningu og er mikið í hana lagt fyrir sýnendur og áhorfendur. brautinni er þannig fyrir komið að áhorfendur geta staðið á einum stað og séð um 80-90 % af brautinni á þess að færa sig til . Sýningar fyrikomulag fer eftir fjölda sem sagt undir 8 einn í einu og tímamæling eða yfir 10 og hlaupandi dedstart og allir í einu og taldir hringir. Það eru engöngu tvær reglur í þessari sýningu og þær eru ef þú sleppir hliði eða þraut ert þú úr leik ef þú snýrð ekki við og ferð í gegnum hliðið og seinni reglan er þessi sýning verður ekki flautuð af í miðjum klíðum út af skælandi mönnum sem eru búnir að drulla í buxurnar og finnst þrautirnar krefjandi .

Helgi að búa til þraut í læknum sem þarf að fara með hjólið undir

Þessi eru alltaf skemmtileg og svo verða líka liggjandi dekk

Hér reynir á að prjóna á réttum stað og missa ekki afturdekkið til hliðar


Þessi skurður var í fyrra nefndur af Finn bónda og það nafn hefur loðað við hann síðan..En sem sagt sýningin hefst kl 21:00 og svo verður pylsu partý upp við hús á eftir og pulla og kók á 200 kall skráning er opinn framm á fimmtudag í síma 8955448 Konungur þúfnanna kveður....