Elvar Jónsteinsson skrifaði þann 03.06.2010 00:39
Við Einir vorum að sníglast í kjarnaskógi um daginn og hittum þar Egil og óla og spurðum þá út í hjólabrautirnar sem er búið að leggja um skóginn. Það varð svo úr að þeir buðu okkur í netta Down Hill kenslustund og við þáðum það með þökkum . Ég smalaði góðum hóp af vitleysingum og við fórum í kvöld kl 21:00 og hittum dempara mennina á dýru hjólunum í kjarnaskógi . Hópurinn var þéttur Helgi ,Þórður þrí fiffftýý´´y , Ég , Garðar tengda pabbi Helga og Ágúst bróðir þórðar.Við smöluðum allskonar hjólum og var hjólið hjá garðari valið mesta raritetið en það bauð uppá sófasæti með kögri stillanlega frammdempara , chopper stýri , og shimano 21 gíra skiptingu með yfirliggjandi skipti gaffli svo eitthvað sé nefnt

Garðar alsáttur á Downhill græjunni
Svo hjóluðum við af stað og ferðinni var heitið uppá klappirnar fyrir ofan kjarna og svo átti að taka reisið niður hjólastígana en við vorum varla lagðir af stað niður á við þá sprakk á einni Downhill tuggunni og menn úr báðum hópum voru vel undirbúnir fyrir slík óhöpp þ.e.a.s þeir voru með auka slöngur og við vorum með Trivial og tókum létta spurningakeppni á meðan skipt var um slöngu


Þegar mesti brattin var búinn fóru dempara mennirnir loksins að halda í við okkur nýliðana sem þurftum bara að treista á flexið í stellinu og þá tók við einstígi í þykkum skógi og inn á milli voru timbur brýr sem vöktu mikkla lukku og varð brautinn meira og meira krefjandi en jafnframt skemmtilegri

Þetta var alveg magnað og menn glaðir í lok ferðar og þær eru fáar brautir sem ég hef hjólað sem eru jafn gefandi og þessar leiðir í skóginum.

Það voru nokkrar biltur í þessari ferð en eingin sem lagði menn og hjól lengi . Takk kærlega fyrir okkur konungur þúfnanna kveður að sinni......