Elvar Jónsteinsson skrifaði þann 06.06.2010 23:57
Það verður glatt á hjalla 19 júní á Akureyri þegar önnur umferð í Enduróinu fer framm á svæði KKA . Vonandi verður landstækkunin gengin í gegn þannig að keppnin fari eingöngu framm í karga þýfi og drulluskurðum . Ég skráði mig til þátttöku og ætla að berast með straumnum eins og belja ný sloppin út að vori .Svæðið er á heimsmælikvarða og þarf að leita alla leið til Rúmeníu til að finna jafn fallega moldarslóða og mýrar sem gleðja Enduro mannin í hverjum hring sem hann ekur . Þetta er svipað og gullfiskur í búri maður sér alltaf eitthvað nýtt þegar maður byrjar nýjan hring og verður bara glaðari og glaðari eftir sem á hann líður . í fyrra keppti ég á 530 ktm og gekk vel í fyrri umferð en stífnaði svo upp í seinni og varð að hætta . í ár ætla ég að vera á ktm 300 og er búinn að hjóla mikið meira en í fyrra þannig að ég ætti að skila mér betur í gegnum brautina en í fyrra en svo er það dagsformið sem ræður ferðinni . Við vonumst til að sjá sem flesta í keppninni en hafið það hugfast að Enduro keppnir eru fyrir enduro menn sem fæstir aka motocross þannig að þær eiga ekki að vera eins og motocross brautir en sjálfsögðu eru motocross menn velkomnir í svona gigg en ekki vera skælandi þó þú náir ekki að máta 5 gírinn í brautinni og vaskassin hjá þér sé eins og Geysir ný búinn að innbirgða 150 Kg af sápu þetta er enduro !!!!!!!! . Konungur þúfnanna kveður .....

Mýrinn var svo falleg í fyrra og þetta gaf manni svo mikið .