Monday, May 21, 2012
What's on!
Minimize


Hlekkir
Minimize


Styrktaraðilar
Minimize

Sími: 895 5448
WWW.SMAVERK.COM



Fréttir
Minimize

16

Við rendum í kvöld upp á brún ég Helgi og Einir. Helgi er ný búinn að skipta Gasinu sínu niður í TM 300 2002 kross tuggu og er helvíti sáttur með það . Ég greip aðeins í lufsuna hjá honum þegar hann var að skíta á sig við að komast upp síðasta skaflinn og vitið menn þetta er ó akandi með öllu plisandi fúsk og gírun fyrir 240 km klst og togið niðri er sært saman með gjöfina í 20.000 snú á mín og vaðandi kúplings pest . frammbremsan virkar stundum og stundum ekki og grípur í þegar síst skyldi . Í græjunni er nýja símastaurafjöðrunin frá öhlins og er þess beðið að hún fari að spúga sislandi 2,5 vökva yfir allt hjólið svo menn geti skipt vökvanum í 5 og eitt milligjöfinni frá Gasinu í pakkdósir framm eftir næsta ári . Það er kínverkst afturdekk á því og eru samreiðarmenn í stórhættu þegar gúmíkubbarnir koma fljúgandi þegar hóstað er í  fjósið . hávaðinn er mikill en það er enginn innistæða á fullum snúning og það tók maður á reiðhjóli framm úr Helga á heimleiðinni slík var yfirferðin. Það reindar sauð ekki á hjólinu en það var vegna þess að það var ekkert vatn á því . Annars vil ég óska helga til lukku með gripinn og eins og hann sagði sjálfur " það er hrikalega kraftmikið" þegar hann var spurður um aksturseiginleika hjólsinns. Konungur þúfnanna kveður.......

Athugasemdir

# helgi
Monday, August 16, 2010 9:48 AM
ætli ég verði ekki að skifta niður í 50cc kínverska vespu svo þú eigir einhvern séns
á KTM hræinu
# Einir
Monday, August 16, 2010 12:22 PM
Ég held að Ella langi svoltið í öhlins fjöðrun á ktm hjólið hahaha:)
# Elli
Monday, August 16, 2010 5:08 PM
já ég get ekki sagt að ég sé mikill öhlins maður eða til að segja þetta bara hreint út er ég ekki mikið fyrir vesen
# Gunni H
Tuesday, August 17, 2010 10:55 PM
Til hamingju með VÉLHJÓLIÐ Helgi.

Skrifa comment

Name (required)

Email (required)

Website

CAPTCHA image
Enter the code shown above in the box below



Eldri fréttir
Minimize


Myndir
Minimize
Benni
Smelltu hér til að skoða myndaalbúm Team Silicon


Auglýsing
Minimize



Auglýsing
Minimize



Privacy Statement  |  Terms Of Use
Copyright 2009 by TeamSilicon.is
);