Elvar Jónsteinsson skrifaði þann 11.10.2010 23:53
Jæja þá er komið að því að skoða þessa nýjung og arftaka gömlu 4mm slöngunar og ég heyri ekki nógu fallegar sögur af þessu hjálpartæki sem átti að taka yfir slöngurnar og auka friðinn í akstri svo menn eiddu ekki öllum kvöldum í bætingar og slöngu skipti .Það eru nokkrir félagar mínir komnir með þessa biltingu undir hjá sér og þetta er því miður aldrei til friðs þetta einfaldlega míglekur og menn eru alltaf að lagfæra þetta eitthvað til að blaðran haldi lofti . Ég segi fyrir mína parta að mig langaði í svona græjur í mín dekk en ekki lengur og svo er annað að þetta kostar eins og ca 4 -5 .. slöngur og þá er þetta orðið mjög tæpt . Ég prófaði að aka á slöngu dekkinu mínu í allt sumar á u.þ.b 3 pundum í öllum aðstæðum og það hefur ekkert sprungið eða dældað felgur og síðan í maí hef ég einu sinni bætt lofti í þau .

kosturinn við þetta er að maður ekur um á 1 pundi og nær heiftarlegu gripi en ekki það mikklu að maður á slöngu sé skilin eftir í duftinu vegna þess að hann er með 3 pund í dekkinu hjá sér .Þá myndi einhver segja en þetta springur ekki hjá þér í miðjum túr , en staðreindin er sú að ég hef farið í túra með mönnum sem koma á þessari biltingu loftlausri heim og þá er allt fúttið farið úr þessu ?,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,