Elvar Jónsteinsson skrifaði þann 29.10.2010 00:34
Ég rendi suður um síðustu helgi og kippti hjóliu með og tók tvö létt rensli með mikka. Mikki er ný búinn fá sér hjól og hann var æstur að komast eitthvað og sýna hversu súkkan er megnug. Við ókum um allt reykjanesið og fundum marga skemmtilega slóða og skemmtum okkur konunglega.hjólið hjá mér fittaði ekki alveg við svona akstur með 2 pund í dekkjunum hardenduro gíringu og allar skrúfur út í demprunum en þetta reddaðist alveg. Við fengum frábært veður og ekki skemmdi félagskapurinn.Seinni daginn stiltum við súkkuna hjá mikka áður en við lögðum af stað og lá hún eins og slumma við gríttu slóðana sem voru sumir á mörkum hins menska. Takk fyrir túrana mikki...............

