Elvar Jónsteinsson skrifaði þann 03.01.2011 11:31
Ég skrapp einn míns liðs upp á Súlur að morgni 1 janúars 2011. Færið var ágætt en svikullt á köflum en ég hafði það á toppinn.Það voru nokkrir á hjólum í baráttunni við hjarnið en flestir hjólamennirnir voru í slagsmálum við höfuðverk gærdagsinns.

Við Einir rendum svo í gær á tindinn líka og það var meiri barátta mikklu linara og hitinn kominn í 7 gráður en svo spáir 10 stiga frosti á miðvikudaginn og þá verða heimsmet sleginn í röðum .



Væri kanski málið að skella á litlu innanfélagsmóti KKA og halda fjalla rall sem sagt startað í fálkafelli hlaupandi start og svo hver er fyrstur að ná í flagg upp á siðri súlur og koma því niður eftir en það yrði flagg á hvern keppanda þannig að það yrði reis niðureftir líka ... hvað segja menn við þessari hugmynd. Eru einhverjir til í þetta ...