Elvar Jónsteinsson skrifaði þann 10.01.2011 17:59
Ég og einir fórum á leynistaðinn í gær og stefnan var tekinn til fjalls og við ákváðum að skoða hvað mætti bjóða hjólunum í púður lækja fjalla þúfna brekku gilja grjót karga ríðingum og þessi túr hafði þetta allt.Við byrjuðum í þúfna karganum sem var fullur af púðri og svo var ekið í gilbörmunum á mörkum þess menska þegar því lauk var Einir grenjandi og kvartaði sáran undan hjólinu sínu en við frekari athugun var drengurinn að keyra hjólið á fullu innsogi sem veit yfirleitt ekki á gott í hardenduróinu. Einir smellti svo innsoginu niður og þá tók Gasið við sér og var hið ferskasta þá tók við púður sexion og þar rasskellti einir Konung þúfnanna í eitt skipti fyrir öll og þá var það ég sem var kominn í grenju gírinn fastur upp fyrir stíri og 200 metra radíus í kringum mig bara púður. Þegar ég hafði mig út úr púðrinu og komst til Einirs ókum við gríðarlegan þúfnakarga í 50 gráðu halla og nú voru hjólinn frosinn í 2 gír og byrjað að krapa í vatnskössunum og blöndungarnir orðnir að einum snjó köggli enda 13 stiga frost og 15 metrar á sek þannig að kuldinn var hrikalegur en það var alveg sama hvað við gerðum í þessum aðstæðum alltaf fóru hjólinn í gang og slógu ekki feilpúst hvort sem við vorum að þæfa í lágu torki eða á fullu gasi.

Eftir þetta fórum við að æfa 1 :80 snúning í hjarn hengjum en það þarf að æfa það eitthvað betur og vídeóin af þeim æfingu munu seint rata á netið þá fórum við að stökkva á stórgrítum og að æfa Blazusiakinn á báðar hendur og þessu lauk svo öllu saman með gullfallegum púngaprjóns æfingum og stunt spirnu með tví kúplingu . Það voru enhverjir boðnir með en hreinlega höfðu það ekki þegar þeir heyrðu leiðarlísinguna á túrnum . Því miður voru fáar myndir teknar í þessu ferðalagi vegna anna myndatökumannsinns við stírið takk fyrir túrinn Einir....Konungur þúfnanna kveður að sinni ..................