Elvar Jónsteinsson skrifaði þann 19.03.2011 20:11
Það er ekki ofsögum sagt að tvígengis deildin er að taka yfir enduroið hér á landi og nýjasta gleðin eru husaberg 300 2t sem voru að lenda hér norðan heiða . Annað hjólið fór til Steina hjalta og hitt segir sagan að Stefán Baðvörður hafi eignast í mývatnsveit. Þessum hjólum hefur verið beðið með mikilli eftirvæntingu því nýji 4 gengis bergurinn var að mínu mati ákveðin vonbrigði og ég veit aðeins um 1 nýjan 4gengis húsaberg sem er ekki til sölu hjá eiganda sínum þannig að allir sem hafa keipt nýjan 4 gengis berg eru með hann á sölu og það hlítur að tala sínu máli.En aftur að 2 stróke deildinni pústið og startsveifin eru komin réttu meginn og hjólið hefur ólíkt 4 strókinu verið að skila sér inná topp 10 í kepnum erlendis og það er gleði efni .

myndin er fengin að láni frá facebook síðu moto
Ég vil óska nýjum husabergeigendum til hamingju með hjólin og verður gaman að sjá hvernig nýjir eigendur spreita sig í hardenduro deildinni í sumar og eins og má sjá á þessu myndbandi eiga menn nóg fyrir stafni í æfingum og drumba akstri. Konungur þúfnanna kveður.....