Elvar Jónsteinsson skrifaði þann 20.05.2011 22:54
Já maður segir nú bara úff búið að vera mikið í gangi og enginn tími fyrir síðuna . Ég er búinn að fara nokkra túra með Unnari og bubba frænda í brautina og það var alveg geðveikt en svo er allt búið að ske sem getur skeð.
Einir bræddi Gas Gas fjósið en er búinn að redda nýjum stimpli og setur saman um helgina. Ég reið framma af barði og gataði kúplings lokið og braut kúpplingskörfuna en Jói pró-x reddaði nýrri og þetta fer allt saman um helgina . og ég set nýjan stimpil í það í leiðinni og þá verður gaman .
Ég heyrði í Gunna H fyrir helgi og hann var að raða hólmfríði gömlu saman en hún er víst kölluð Unnur Birna núna en hann keypti nánast allt nýtt í hana nema bensín kranan og er þetta önnur dýrasta upptekt sögunar á eftir snjósleða upptektinni hans gunna fyrr í vetur og hann segir að við 2 stróke gemlingarnir getum bara sett niður standarana og hætt að keyra þegar hann mætir í brautina.
jæja nóg í bili en ég lofa að vera duglegri að pósta fréttum og sögum Konungur Þúfnanna kveður í bili.