Elvar Jónsteinsson skrifaði þann 13.06.2011 08:56

Ég get ekki sagt að ég sé mikill klaustursmaður og verð aldrei og það er vegna þess að keppnin er mjög laus í taumi með það að hún hefur ekki í eitt skipti verið framkvæmd eins og hún er auglýst og því er mjög erfitt fyrir keppendur að gera keppnisplan til að vinna mótið .
Keppninni er alltaf breytt í miðju móti eða korteri fyrir mót eða brautinni breytt þegar forustu menn eru í slagsmálum við hvorn annan um sigur og maður skilur ekki til hvers að laga brautina í miðju móti þegar 97% af keppendum eru með til að hreyfa hjólin sín ekki til að keppa .
Mikið hefur borið á því að menn sleppi hliðum og það er etthvað sem ég þoli ekki og mér finnst að menn eigi að vera dæmdir úr leik ef þeir sleppa hliði því þá fáum við fyrst sigurvegara sem er verðugur að hafa ekið í 6 tíma og sömu braut og aðrir eru að berjast við .
Víkverjar eiga heiður skilið fyrir að leggja í að halda svona mót og ómetanlegt að fá fullt af fólki til að starfa á suðurlandinu í miðjum hringvöðvanum eins og einhver sagði .
En víkverjar eru líka sjálfum sér verstir að vera svona seinir með frestunina þetta árið og fara hálf illa með allt staffið sitt sem situr nú af ósekju undir því að hafa klúðrað mótinu .
Með svona stórt mót væri gott að segja dagsetninguna á mótinu og hafa svo einn dag til staðfestinga á dagsetningu þegar nær dregur og ef mótið er staðfest á seinni dagsetningunni er það haldið hvort það er rigning mýrin er of löng eða að það er allt í ösku því þá er mótið bara kallað mýrarmótið mikkla eða öskumótið mikkla og allir eru ánægðir sem vissu að hverju þeir gengu þegar mótið var staðfest á seinni dagsetningunni .
ég held að það væri ráðlegt að fara að halda þetta mót meira fyrir þau 97% af keppendum sem eru bara með heldur en að leggja allt púðrið í þessi 3% sem eru í aðal slagnum.
Svona sem niðurlag vildi ég bara benda á hvort við ættum ekki að færa mótið (KlAUSTUR) upp í mývatnsveit og kalla mótið bara AUSTUR . Í sveitinni er eitt stikki eldfjall , þar er mikil víðátta, nóg gistirými og menn hoknir að reynslu í keppnishaldi bara svona tillaga. Konungur Þúfnanna kveður.................
PS þess má til gamans geta að hjólið hér á myndinni að ofan er hjólið hans þórðar en hann seldi það fyrir nokkrum dögum og var gripurinn slegin hæstbjóðanda og fór á 650.000 stg. teamsilicon óskar nýjum eiganda til hamingu með gripinn.....