|
|
|
 |
|
|
Entries for 'Elvar Jónsteinsson'
Elvar Jónsteinsson skrifaði þann 14.10.2011 01:03
Við Einir gerum alltaf eitthvað skemmtilegt í kringum afmælis dagana okkar og minn um síðustu helgi var einginn undantekning.
Einir var með tilþrif á tilþrif ofan og fór hreinlega á kostum og ég er bara rétt að ná mér eftir allar bilturnar og þúfna tilþrifinn
takka fyrir renslið GAMLI !!!!!!!!!!!!!!!!!!!!
ps það er skemmst frá því að segja að ég er hættur við að selja 300 hjólið ég tók það í gegn og hreinsaði blöndung og setti í það platínu kerti smurði og tók á því yfirhallingu og það er eins og nýtt og ekki til sölu konungur þúfnanna kveður !!!!
Elvar Jónsteinsson skrifaði þann 08.10.2011 10:52
Vegna fjölda áskoranna ætla ég að henda inn 2 myndböndum frá túr sem við fórum í sumar ég bubbi og gunni og ætluðum yfir á vaðinu sem er venjulega stígvéla færi en eitthvað hafði dýfkað í ánni og því fór sem fór . En við komumst samt yfir á endanum og tókum hrikalega á því og á köflum bar aðeins á bláum lit á hörundi G.H í mestu ófærunum .
Svo var komið að mönnunum sem hafa aldrei farið yfir á nema undir yfirborðinu og þetta var eingin undantekning og í lokin þurfti 3 mannin til að bjarga gasinu frá drukknun .
það eru til mörg álíka góð og svæsnari myndbönd frá sumrinu sem ég set kanski inn bráðlega ef menn hafa áhuga Konungur Þúfnanna kveður í bili ..................................
Elvar Jónsteinsson skrifaði þann 05.10.2011 23:17
Ég hendi inn nokkrum myndböndum af mér og Eini í brautinni á laugardaginn ííiiíiiiíi´íhahhhahaaaahah
Elvar Jónsteinsson skrifaði þann 09.08.2011 09:09
Já nýja 300 hjólið frá Husaberg er mjög flott og þeir eru smá saman að breita lúkkinu og þau verða sennilega bara eiguleg á endanum
En í dag eru það nánast bara liturinn á plöstunum sem skilur að Ktm og Husaberg .Hjólið er með stórum endurotank brembo bremsum keihin blöndung og svo mætti lengi telja en mesta breytinginn er gula stellið og það passar bara vel við hjólið.
Annar besti hardenduro ökumaður norðulands( Gunni H) hitti fyrrverandi hardenduroökumann( Villa þorra )á götu um daginn og Villi sagði "hhheeeeee ertu búinn að sjá nýja berginn" og togaði létt í sokkana " hann er kominn með nýju stelli og ég verð fertugur ánæsta ári og er að spá í að fá mér svona hjól í tilefni þess eeehhhehee.

Þannig að það er ljóst að flestir eru að færa sig yfir í 2 stroke deildina og í hardið er það eina sem virkar
En að mér er það að frétta að Ktmið mitt 300 exc 2006 er til sölu og er falt með öllu á 550.000kr . Það er fullt af myndum af því á síðunni og ef menn hafa áhuga þá er bara að hringja í 8955448 og landa þessu harðasta tæki landsinns. ATH hjólinu fylgir 13 lítra tankur og skott stírisdempari , ný tannhjól og keðja og ný kúpling,karfa og lok en einnig er glænýr stimpill í því ........konungur þúfnanna kveður .....
Elvar Jónsteinsson skrifaði þann 08.08.2011 16:50
Ég fann flotta kynningu á túbunni af keppninni en strákarnir okkar eru einmitt að keppa þar þessa dagana og við óskum þeim góðs gengis
Elvar Jónsteinsson skrifaði þann 08.08.2011 00:05
Ég fékk ábendingu frá Eini um þenna Gasmann og hann er að taka allt út úr 250 Gasinu .
Elvar Jónsteinsson skrifaði þann 15.07.2011 13:17
Mikki kom norður og við skelltum okkur í 2 gullfallega túra í vikunni sá fyrri var farinn á Hjalltadals slóðanum og var mjög skemmtilegur .
Mikki er í fjærþjálfun í Hardenduroi og gengur vonum framar hann stóðst öll test um helgina nema steinabeðið en Heiða hafði bannað honum að æfa sig í því heima fyrir þannig að honum vantaði smá æfingu .


þetta gekk eins og í sögu og allir glaðir þegar nóttin stittist í annan endan .
Seinni túrinn skelltum við okkur í Hálsaskógin og litum á slóðana þarog urðum ekki fyrir vonbrigðum þetta var bara allur pakkinn
slóðinn er sumstaðar orðinn að þúfna karga og var þá nettur burður til að komast áfram í gegnum það


Elvar Jónsteinsson skrifaði þann 03.07.2011 09:07
Loksinns hardenduro rensli með Einsa frá grenvitsh . Við Einir rendum á leinistaðinn á föstudagskvöldið og urðum ekki fyrir vonbrigðum það hafa verið miklar sviptingar í enduro hjólunum okkar síðasta mánuðinn og þau eru loksins komin saman aftur og eru bæði kominn með nýja stimpla og mitt er með nýrri kúplingskörfu og öllum pakningum og legum sem hægt var að skipta um í þetta skiptið .

Það er ekkert sem toppar það að taka einn lötur hægan og hrikalega krefjandi Enduro túr í góðum félagskap og ekki spillir að hafa einn fúlskeggjaðan Gasmann með í för ..

hjólin eru bara geðbiluð þau eru svo góð og í þessum 3 tíma túr eiddi hvort hjól undir 2 lítrum af bensíni og það er lectroninum að þakka og svona eiðslu tölur hef ég ekki kynnst áður .takk fyrir túrinn Einir.........

Ps ég tók smá bling á heddið og nokkur lok í leiðinni og skipti um hedd bolta .....konungur þúfnanna kveður.......
Elvar Jónsteinsson skrifaði þann 22.06.2011 13:53
Ég var rétt í þessu að finna myndir af mótinu á Akureyri inn á motosport.is endilega fara inn á þessa síðu það eru líka flottar fréttir á henni og umfjöllun um mótið góða skemmtun
Elvar Jónsteinsson skrifaði þann 19.06.2011 23:33
Um síðustu helgi var frábært mót í boði KKA á akureyri. Það fór allt framm í mesta bróðerni og keppendur voru til sóma og allir ánægðir eftir báðar umferðir ég var sjálfur í racepoolice og ég heyrði kallað á eitt víti í báðum umferðum sem segir manni að brautin var það skemmtileg að það datt ekki nokkrum manni í hug að svindla og er þessi breiting að mínu skapi .
Brautin var lögð af sönnum snillingum og ættu þeir að leggja allar brautir á íslandi hér eftir ef ekki erlendis líka. Allir komu með góðaskapið og ég hef ekki skemmt mér svona vel lengi við að toga menn og konur upp úr drullupittum og einnig við að horfa á kára bjögga og bjarka aka brautina en það var alveg magnað að horfa á þessa menn að öllum öðrum ólöstuðum
Það er mikill fengur fyrir KKA að hafa menn eins og Gunna H ,Stebba Gull ,Árna grant ,Sigga b , Sidda , Unna , Bjarna ,Steina, Eika rauða , og alla sem mættu og ég er að gleyma og það væri ekki hægt að halda svona gott mót ef ekki væru góðir sjálfboðaliðar i klúbbnum Ég vil þakka fyrir mig og segi að það eru forréttindi að hafa starfað á svona góðu móti .
ps aðeins einn maður komst ekki brautina sem var annars greiðfær en sá maður var Steini Kawazaki en hann hafði ekki brekkuna upp á nýja tippin en þess skal getið að hann var í racepolice í þetta skiptið þannig að hann getur ekki kært keppnisstjóra fyrir ófæra braut konungur þúfnanna kveður ............
Elvar Jónsteinsson skrifaði þann 16.06.2011 13:10
Ég skrapp í gærköldi til að skoða brautina og hún er alveg geggjuð fullt af brekkum margar leiðir til að velja léttar og þungar og bara flott flæði í henni og gleði
Ég fór bara á trialinu þar sem 300 hjólið er enn þá frá eftir að ég mölvaði kúplingskörfuna og ég pantaði hana hjá jóa í próxsport og eftir 5 vikna bið hefur ekkert til hennar spurst og þar með er öll þjálfununin frá áramótum farin í vaskinn og ég verð bara í racepolice um helgina og ég vil þakka Jóa fyrir reddinguna (not) og mæli með að menn panti hjá honum ef þeir hafa sumarið fyrir sér til að bíða eftir varahlutum .
En sem sagt ég pantaði svo körfuna hjá kalla en hún kemur á mánudaginn og það sýnir sig að það er best að versla bara við umboðið þegar manni vantar eitthvað þó að það sér örlítið dýrara . sjáumst um helgina. konungur þúfnanna kveður r!!!!!!!!
Ps mér áskotnaðist þetta fallega hjól og það er til sölu um er að ræða yamaha yz 250F 2009 nýtt hjól og aldrei verið sett í gang er til í að láta það á 1090.000 en það má líka bjóða í það eins kæmi til greina að taka upp í það krakka hjól fyrir svona 9 ára stelpu eða eitthvað ktm á verðinu kringum 300.000 endilega að hringja og kanna viðskipti í síma 8955448 Elvar ..........

Elvar Jónsteinsson skrifaði þann 15.06.2011 08:56
Um næstu helgi verður haldið stæðsta og best útfærðasta enduro keppni allra tíma í torfadal ofan Akureyrar , en Stæðsti klúbbur landsinns KKA mun þar bjóða upp á hrikalega flott svæði til enduro aksturs.
Til fjölda ára hefur KKA haldið þetta mót og fengið mikið lof fyrir og brautinn þetta árið er mjög krefjandi og hreint mögnuð og munu margir vatnskassar kveðja yfirbyggingu hjólsinns áður en yfir líkur.
Einnig er næsta víst að stimplar munu vera flúgandi um allar jarðir og það er ekki ráðlegt fyrir nema öflugusu ökumenn á leggja í skráningu í þessu móti
mótið byrjar í bítið á laugardegi og stendur fram eftir degi ...Allir að mæta .........

Elvar Jónsteinsson skrifaði þann 13.06.2011 08:56

Ég get ekki sagt að ég sé mikill klaustursmaður og verð aldrei og það er vegna þess að keppnin er mjög laus í taumi með það að hún hefur ekki í eitt skipti verið framkvæmd eins og hún er auglýst og því er mjög erfitt fyrir keppendur að gera keppnisplan til að vinna mótið .
Keppninni er alltaf breytt í miðju móti eða korteri fyrir mót eða brautinni breytt þegar forustu menn eru í slagsmálum við hvorn annan um sigur og maður skilur ekki til hvers að laga brautina í miðju móti þegar 97% af keppendum eru með til að hreyfa hjólin sín ekki til að keppa .
Mikið hefur borið á því að menn sleppi hliðum og það er etthvað sem ég þoli ekki og mér finnst að menn eigi að vera dæmdir úr leik ef þeir sleppa hliði því þá fáum við fyrst sigurvegara sem er verðugur að hafa ekið í 6 tíma og sömu braut og aðrir eru að berjast við .
Víkverjar eiga heiður skilið fyrir að leggja í að halda svona mót og ómetanlegt að fá fullt af fólki til að starfa á suðurlandinu í miðjum hringvöðvanum eins og einhver sagði .
En víkverjar eru líka sjálfum sér verstir að vera svona seinir með frestunina þetta árið og fara hálf illa með allt staffið sitt sem situr nú af ósekju undir því að hafa klúðrað mótinu .
Með svona stórt mót væri gott að segja dagsetninguna á mótinu og hafa svo einn dag til staðfestinga á dagsetningu þegar nær dregur og ef mótið er staðfest á seinni dagsetningunni er það haldið hvort það er rigning mýrin er of löng eða að það er allt í ösku því þá er mótið bara kallað mýrarmótið mikkla eða öskumótið mikkla og allir eru ánægðir sem vissu að hverju þeir gengu þegar mótið var staðfest á seinni dagsetningunni .
ég held að það væri ráðlegt að fara að halda þetta mót meira fyrir þau 97% af keppendum sem eru bara með heldur en að leggja allt púðrið í þessi 3% sem eru í aðal slagnum.
Svona sem niðurlag vildi ég bara benda á hvort við ættum ekki að færa mótið (KlAUSTUR) upp í mývatnsveit og kalla mótið bara AUSTUR . Í sveitinni er eitt stikki eldfjall , þar er mikil víðátta, nóg gistirými og menn hoknir að reynslu í keppnishaldi bara svona tillaga. Konungur Þúfnanna kveður.................
PS þess má til gamans geta að hjólið hér á myndinni að ofan er hjólið hans þórðar en hann seldi það fyrir nokkrum dögum og var gripurinn slegin hæstbjóðanda og fór á 650.000 stg. teamsilicon óskar nýjum eiganda til hamingu með gripinn.....
Elvar Jónsteinsson skrifaði þann 20.05.2011 22:54
Já maður segir nú bara úff búið að vera mikið í gangi og enginn tími fyrir síðuna . Ég er búinn að fara nokkra túra með Unnari og bubba frænda í brautina og það var alveg geðveikt en svo er allt búið að ske sem getur skeð.
Einir bræddi Gas Gas fjósið en er búinn að redda nýjum stimpli og setur saman um helgina. Ég reið framma af barði og gataði kúplings lokið og braut kúpplingskörfuna en Jói pró-x reddaði nýrri og þetta fer allt saman um helgina . og ég set nýjan stimpil í það í leiðinni og þá verður gaman .
Ég heyrði í Gunna H fyrir helgi og hann var að raða hólmfríði gömlu saman en hún er víst kölluð Unnur Birna núna en hann keypti nánast allt nýtt í hana nema bensín kranan og er þetta önnur dýrasta upptekt sögunar á eftir snjósleða upptektinni hans gunna fyrr í vetur og hann segir að við 2 stróke gemlingarnir getum bara sett niður standarana og hætt að keyra þegar hann mætir í brautina.
jæja nóg í bili en ég lofa að vera duglegri að pósta fréttum og sögum Konungur Þúfnanna kveður í bili.
Elvar Jónsteinsson skrifaði þann 20.04.2011 20:42
Í fyrra málið ætlum við loksins að viðra fákana og renna upp í braut og fagna sumri í 4 sinn á þesum fallega degi við rennum héðan um 8 leitið og klárum einn tank í brautinni........ meira um það á morgunn.....

Elvar Jónsteinsson skrifaði þann 19.03.2011 20:11
Það er ekki ofsögum sagt að tvígengis deildin er að taka yfir enduroið hér á landi og nýjasta gleðin eru husaberg 300 2t sem voru að lenda hér norðan heiða . Annað hjólið fór til Steina hjalta og hitt segir sagan að Stefán Baðvörður hafi eignast í mývatnsveit. Þessum hjólum hefur verið beðið með mikilli eftirvæntingu því nýji 4 gengis bergurinn var að mínu mati ákveðin vonbrigði og ég veit aðeins um 1 nýjan 4gengis húsaberg sem er ekki til sölu hjá eiganda sínum þannig að allir sem hafa keipt nýjan 4 gengis berg eru með hann á sölu og það hlítur að tala sínu máli.En aftur að 2 stróke deildinni pústið og startsveifin eru komin réttu meginn og hjólið hefur ólíkt 4 strókinu verið að skila sér inná topp 10 í kepnum erlendis og það er gleði efni .

myndin er fengin að láni frá facebook síðu moto
Ég vil óska nýjum husabergeigendum til hamingju með hjólin og verður gaman að sjá hvernig nýjir eigendur spreita sig í hardenduro deildinni í sumar og eins og má sjá á þessu myndbandi eiga menn nóg fyrir stafni í æfingum og drumba akstri. Konungur þúfnanna kveður.....
Elvar Jónsteinsson skrifaði þann 10.03.2011 16:42
Menn hitta ekki alltaf á vaðið en KTMið þolir þetta léttilega og rauk í gang á eftir
Elvar Jónsteinsson skrifaði þann 01.03.2011 21:55
já já ég er að spá í að gefa þessum skóm sénsinn í sumar. Ég byrjaði að aka í Forma skóm og þeir voru góðir með lausum sokk og lið en entust illa og ég skipti svo yfir í Acerbis og þeir tvístruðu smellunum strax og ekkert hægt að fá í þá og þeir eru orðnir götóttir og sólin á leiðinn eitthvert annað en ökumaðurinn þannig að ég ætla að prófa Jettinn í sumar frá Jóa í Proxmotorsport.com og sjá hvernig þeir reynast.
ps svo eiga þeir að vera 1 og 1/2 kg léttari en sambærilegir skór og flestir hlutir í þeim útskipanlegir og þvi flottir í hardenduróið.
Elvar Jónsteinsson skrifaði þann 18.02.2011 00:17
Ég skrapp í um 4 leitið í 2 tíma upp í hlíðarfjall að kanna færið og það hafði snjóað um 20 cm púðri yfir hjarnið og þetta færi er alveg geggjað. ég byrjaði að fara út af hlíðarfjalls veginum við vatns veginn inná dal og ók hann á enda og svo bara upp og upp undir syðri skálina þar snéri ég við og keirði niður í glerádals gilið og yfir ánna og upp á mýrar þar var bara meira púður og ég hafði mig bara hálfa leið upp á súlur og eigin lega nennti ekki upp því 5 gírinn var svo skemmtilegur á flatanum fyrir neðan í púðrinu . Annars bara gott að frétta og allt vaðandi í sófaenduromönnum á svæðinu sem eru að missa af hjarninu....Konungur þúfnanna kveður............

Gilið fyrir neðan syðri skálina í hlíðarfjalli

Súlur og mýrarnar í baksýn
Elvar Jónsteinsson skrifaði þann 16.02.2011 23:55
Elvar Jónsteinsson skrifaði þann 30.01.2011 21:51
við Einir tókum netta skreppu í víkurskarðið seinni partinn í dag. Við vorum báðir frekar spenntir því ég var með nýjan iKAT tengdan við kveikjuna og Einir er búinn að gera sér lítið fyrir og upp færa mótorinn sinn í 300 cc þannig að að við vorum báðir spenntir að prófa eitthvað nýtt. Til að gera langa sögu stutta virkaði spark magnarinn hjá mér alveg geðveikt og hjólið togar núna meira en 530R hjólið gerði og það á enginn séns í þúfna brekkunum í sumar. Einir var sáttur við mótorinn og hjólið höndlaði vel hjá honum en færið var ekki frosið því við vorum í 5 stiga hita.Í einni brekkunni rankað Einir við sér með stírisbúnaðinn í fanginu og þá hafði félagi hans eftir faðir vor KTM manna sem hljómar svo Kalli vor þú sem ert í mótó , helgist mitt hjól og tilkomi þitt ktm verði svo spól bæði í drullu sem og þúfum o.s.v frammvegis en tilkoma ræðunna var sú að KTM bilar ekki .........alldrei.........og ég held að
grenvíkingurinn sé að hugsa um að skipta um tegund því það er mikklu skemmtilegra að keyra en að gera við .
Ég fullyrði að menn hafa ekki heyrt hreinna sound í 2 stróke hjóli til fjalla

Nei nei nei veðurfræðingurinn frá grenvitsh með skiptilykil í viðgerðum á heiðinni heheeeee

eftir að við einir fengum blöndungana frammleiða hjólin bensín þannig að við erum að spá í að fara að selja allt sem kemur af þeim á 100 kall líterinn..

Neista magnarinn sem ég keipti hjá dóra í Nírto kemur á óvart hjólið er gangvissara startar fyrr og torkar meira þannig að ég mæli með þessu skrítna litla stikki. Konungur Þúfnanna kveður.....
Elvar Jónsteinsson skrifaði þann 11.01.2011 20:22
Í gærkvöldi rendum við Einir í heimsókn til Bubba frænda að skoða hvernig upptektin á Gasinu gengi hjá honum og þar koma menn ekki að tómum kofanum þegar þrif og lagfæringar hjólum eru annars vegar. Hann er búinn að pólera gripinn hátt og lagt og jón í jhm myndi ekki bjóða mönnum upp á hreinni hjól þó að þau kæmu beint ú kassanum .

það er allt pólíhúðað sem hægt er að húða og þar er ekkert ó orginal drasl sem fær að vera í hjólinu nema frostlögurinn, bensínið og olían.
hann keipti öll hanföng ,keðju tannhjól hosur og slöngur í það og það er löðrandi í Auto sol og siliconi

Hjólið er 200 Gas Gas 2006 en Bubbi keipti það af knúti hefilstjóra fyrir um mánuði síðan . Það eru ekki allir sem leggja í að pólera afturgaffalinn á enduro hjólinu sínu en frændi var ekker að tvínóna við hlutina og póleraði allar skrúfur handföng og subfraimið líka og það er ekki blettur sem tuskan 1200 pappírinn og slípimassin hefur ekki farið yfir.

Elvar Jónsteinsson skrifaði þann 10.01.2011 17:59
Ég og einir fórum á leynistaðinn í gær og stefnan var tekinn til fjalls og við ákváðum að skoða hvað mætti bjóða hjólunum í púður lækja fjalla þúfna brekku gilja grjót karga ríðingum og þessi túr hafði þetta allt.Við byrjuðum í þúfna karganum sem var fullur af púðri og svo var ekið í gilbörmunum á mörkum þess menska þegar því lauk var Einir grenjandi og kvartaði sáran undan hjólinu sínu en við frekari athugun var drengurinn að keyra hjólið á fullu innsogi sem veit yfirleitt ekki á gott í hardenduróinu. Einir smellti svo innsoginu niður og þá tók Gasið við sér og var hið ferskasta þá tók við púður sexion og þar rasskellti einir Konung þúfnanna í eitt skipti fyrir öll og þá var það ég sem var kominn í grenju gírinn fastur upp fyrir stíri og 200 metra radíus í kringum mig bara púður. Þegar ég hafði mig út úr púðrinu og komst til Einirs ókum við gríðarlegan þúfnakarga í 50 gráðu halla og nú voru hjólinn frosinn í 2 gír og byrjað að krapa í vatnskössunum og blöndungarnir orðnir að einum snjó köggli enda 13 stiga frost og 15 metrar á sek þannig að kuldinn var hrikalegur en það var alveg sama hvað við gerðum í þessum aðstæðum alltaf fóru hjólinn í gang og slógu ekki feilpúst hvort sem við vorum að þæfa í lágu torki eða á fullu gasi.

Eftir þetta fórum við að æfa 1 :80 snúning í hjarn hengjum en það þarf að æfa það eitthvað betur og vídeóin af þeim æfingu munu seint rata á netið þá fórum við að stökkva á stórgrítum og að æfa Blazusiakinn á báðar hendur og þessu lauk svo öllu saman með gullfallegum púngaprjóns æfingum og stunt spirnu með tví kúplingu . Það voru enhverjir boðnir með en hreinlega höfðu það ekki þegar þeir heyrðu leiðarlísinguna á túrnum . Því miður voru fáar myndir teknar í þessu ferðalagi vegna anna myndatökumannsinns við stírið takk fyrir túrinn Einir....Konungur þúfnanna kveður að sinni ..................
Elvar Jónsteinsson skrifaði þann 07.01.2011 21:37
Það var bankað að dyrum hjá mér í dag og ég fór til dyra en trúði ekki alveg mýnum eigin augum þegar ég sá hver stóð fyrir utan full gallaður en þar var enginn annar en bubbi frændi og reiðskjótinn hans var forlátaTrialhjól stífpólerað . Já það var gaman að sjá drenginn á lífi og mjög óvænt að hann riði um á trialinu en það er um 1 meters púður í götunni minni .
Ps. spurning um að útnefna Harðasta trial mannn landsinns ?????

Elvar Jónsteinsson skrifaði þann 07.01.2011 09:45
Hjá KKA er alltaf farinn víðfrægur túr á gamlársdag hvernig sem viðrar og hafa þessir túrar verið skrautlegir í gegnum tíðina en alltaf gengið vel . Yfirleitt er ekið á vaðlaheiðinni og þar í kring og þetta árið var ekið í hrossadalnum og á heiðinni norðanverðri.Það var góð mæting og nokkur andlit sem sáust síðast á hjóli í hittifyrra menn eru oft með kakó meðferðis og taka menn frekar með sér kakóið heldur en bensínið á hjólinn en fyrir nokkrum árum varð gauti möller bensínlaus í bíldsárskarðinu í byrjun túrs en gárungarnir sögðu að hann hefði verið með fullan bakpoka af kakó meðferðis.Í ár var ágætis hjarn og náðu menn nokkrum brekku keppnum og tilþrifum í giljunum.Annars er það að frétta að KKA fékk flottan styrk frá samherja á dögunum sem kemur sér vel til uppbyggingar á þessum frábæra klúbbi Konungur þúfnanna kveður.....


Myndirnar er fengnar að láni hjá Stebba Gull það má sjá fleiri myndir á facebook síðunni hans
Elvar Jónsteinsson skrifaði þann 06.01.2011 14:30
sagan segir að gunnar hákonarsson sé hættur í sleðamennskunni og hafi fest kaup á suzuki fjallajeppa og að hann sé að hækka hann upp og gera hann kláran fyrir komandi átök . Það náðist spy video að karlinum í leirutjörninni á dögunum við æfingar en hann keppti einmitt á þessari sömu tjörn í fyrra en þá var hann á sleða.......
Elvar Jónsteinsson skrifaði þann 05.01.2011 18:47
Ég gleymdi myndinni af nýja kælinum sem ég smíðaði í ktmið en hann kom bara vel út og magnið af kælivökva jókst um ca 1/2 lítra og kælirinn var sem sniðinn fyrir púðuraksturinn svo er bara að sjá þegar maður ekur eingöngu í hjarni í botni hvort hann þurfi að vera stærri en það allavega sauð ekki á hjólinu í mestu átökunum.

Elvar Jónsteinsson skrifaði þann 05.01.2011 14:35
Elvar Jónsteinsson skrifaði þann 03.01.2011 11:31
Ég skrapp einn míns liðs upp á Súlur að morgni 1 janúars 2011. Færið var ágætt en svikullt á köflum en ég hafði það á toppinn.Það voru nokkrir á hjólum í baráttunni við hjarnið en flestir hjólamennirnir voru í slagsmálum við höfuðverk gærdagsinns.

Við Einir rendum svo í gær á tindinn líka og það var meiri barátta mikklu linara og hitinn kominn í 7 gráður en svo spáir 10 stiga frosti á miðvikudaginn og þá verða heimsmet sleginn í röðum .



Væri kanski málið að skella á litlu innanfélagsmóti KKA og halda fjalla rall sem sagt startað í fálkafelli hlaupandi start og svo hver er fyrstur að ná í flagg upp á siðri súlur og koma því niður eftir en það yrði flagg á hvern keppanda þannig að það yrði reis niðureftir líka ... hvað segja menn við þessari hugmynd. Eru einhverjir til í þetta ...
Elvar Jónsteinsson skrifaði þann 28.12.2010 22:10
Elvar Jónsteinsson skrifaði þann 24.12.2010 09:59
Set inn nokkrar af þeim 2000 myndum og 300 myndböndum sem príddu árið 2010 ég þakka samreiðarmönnum mínum fyrir skemmtilegan akstur og ánægjulegt ár Konungur þúfnanna kveður....












Þetta var
þetta var frábært hjóla ár takk allir
Elvar Jónsteinsson skrifaði þann 16.12.2010 18:16
Við stebbi gull rendum í fjallið í gær

Elvar Jónsteinsson skrifaði þann 10.12.2010 20:02
Við tókum broak bak mountain á þetta og vorum bara 2 að skrúfa . Einir fór í að festa skiddplötuna á hjólinu sínu og var engu nær eftir góða 2 tíma og ákvað svo að hafa hjólið og plötuna aðskilið um tíma og leyfa þeim að hugsa sinn gang .Einir var búinn að hressa uppá felgurnar sínar og þær eru flottar og eru einfaldlega handmálaðar og er þetta góð leið fyrir þá sem hafa þolinmæði en hann notaði 2 þátta skipalakk og það virðist halda vel.

Aukakælirinn sem ég er að smíða í Ktmið er búkka kælir úr sleða og ég ætla að festa hann upp í afturbrettið og þá næ ég að auka kælivatnið um ca 1/2 líter og þá er hægt að halda því í botni endalaust.

Einir ók svo hressilega um síðustu helgi að stíris skrúfan gaf sig og kvaddi partýið enda er hann alltaf fljúgandi yfir stírið svo ekki er nema von að eitthvað gefi sig.

Nýja flís moddið til að minka púðrið inn í lofthreinsarann á ktminu

Takk fyrir kvöldið Gamli hunda rúnkari
Elvar Jónsteinsson skrifaði þann 05.12.2010 11:10
Elvar Jónsteinsson skrifaði þann 29.11.2010 15:53
Ég fann gullfallega mynd af þessu fallega hjóli og ekki skemmir nú tegundin . Menn segja oft að sagan endurtaki sig og það á við um stellið þó að það séu 30 á síðan er ktmið komið aftur í appelsínuíugula stellið sem þykir nímóðins í dag en var eins á litinn fyrir svo löngu síðan .

Ekki var linkurinn að þvælast fyrir neinum og þarna voru menn með 2 ohlins afturdempara og það eru nú bara haugar eins og Einir og Gunni H sem halda að ohlins sé eitthvað nýtt í dag
konungur þúfnanna kveður...................
Elvar Jónsteinsson skrifaði þann 21.11.2010 13:12
Það var glæsileg enduro cross keppni haldinn í skagafirði í gær og tókst mjög vel að sögn viðstadra. Haukur 10 sigraði og kári varð annar og verður gama að fylgjast með þeim slást um titilinn í vetur ..

Árni 100 með flott tilþrif

Binni Morgan að sóla nokkra barða upp á nýtt
Myndirniar er fengnar hjá mxmyndir.is
PS. til gamans mátti sjá mjög sérstakar skráningar í þetta mót t.d bjarki 670 keppti fyrir team Honda á kawasaki og jonni .is var styrktaraðili hans. Haraldur örn keppti samkv skráningu á 750 cc TM toostroke trillitæki og Jóhannes tryggvi keppti á súkku sem er bæði 450 og 600 cc
Elvar Jónsteinsson skrifaði þann 10.11.2010 12:46
Það er rosalegt að sjá þessa kappa reyna að elta kappann góða skemmtun
Annars er það að frétta að ég tók rennsli upp í fálkafellið í gær og svo ók ég motocross brautina 2 svar og það var púður og erfitt færi en bara hin mesta skemmtun.
ps. spurning hvort sófaenduro mennirnir ætli ekki út úr húsi fyrr en í jólatúrnumm .
Elvar Jónsteinsson skrifaði þann 08.11.2010 00:07
Fékk þennan link lánaðan hjá Eini .. bara einfaldlega og gott sunnudagsbíó !!
Elvar Jónsteinsson skrifaði þann 04.11.2010 18:24
Samkvæmt vefsíðunni Morgan.is verður enduro cross 20 nóv á sauðárkróki. Keppnin verður í Reiðhöllinni áq staðnum og byrja kl 15:00 nánari upplýsingar er að finna á morgan.is

nú er bara að skrá sig og taka þátt í gleðinni...!!!!!
Elvar Jónsteinsson skrifaði þann 31.10.2010 10:38
Ég er að spá í að henda 300 hjólinu á naglana á eftir það er kominn snjóþekja og -3 stiga frost og nú verður gaman . Endurobrautin er geggjuð við þessar aðstæður og ekki er langt í að fjöllin verði fær.

það er mjög gaman að aka hörðu lækina þegar þeir frjósa og þá hafa naglarnir gott grip í frostnu steinunum ..nú fer hardenduroið á fullt fyrir alvöru. Konungur þúfnanna kveður.............
Elvar Jónsteinsson skrifaði þann 29.10.2010 00:34
Ég rendi suður um síðustu helgi og kippti hjóliu með og tók tvö létt rensli með mikka. Mikki er ný búinn fá sér hjól og hann var æstur að komast eitthvað og sýna hversu súkkan er megnug. Við ókum um allt reykjanesið og fundum marga skemmtilega slóða og skemmtum okkur konunglega.hjólið hjá mér fittaði ekki alveg við svona akstur með 2 pund í dekkjunum hardenduro gíringu og allar skrúfur út í demprunum en þetta reddaðist alveg. Við fengum frábært veður og ekki skemmdi félagskapurinn.Seinni daginn stiltum við súkkuna hjá mikka áður en við lögðum af stað og lá hún eins og slumma við gríttu slóðana sem voru sumir á mörkum hins menska. Takk fyrir túrana mikki...............


Elvar Jónsteinsson skrifaði þann 16.10.2010 21:18
já já við skulum bara taka af allan vava um hugmyndir Gunna hvar ég reyni á slönguna mína . Einkalandið kemur sér alltaf vel þegar á að taka nett grjót rensli og þar erum við félagarnir á heimavelli . Ég og félagar mínir höfum aldrei fundið ófæru sem við höfum ekki sigrað og það verður ekki meðan land byggist. Gunni myndi læra helling af því að aka með okkur dag einn þangað sem 4 strókin hafa aldrei komið , eilífðin endar og land hinna 2 strokka véla tekur við af tóminu nú þurfum við að fara taka rensli gamli lýsislampi . Konungur urðarinnar kveður.....

Elvar Jónsteinsson skrifaði þann 13.10.2010 20:00
Bullandi metnaður í þessu hjóli manni vantar eitt slíkt eintak með álstellinu til uppgerðar Djöv væri ég til í að sitja svona eintak
Elvar Jónsteinsson skrifaði þann 11.10.2010 23:53
Jæja þá er komið að því að skoða þessa nýjung og arftaka gömlu 4mm slöngunar og ég heyri ekki nógu fallegar sögur af þessu hjálpartæki sem átti að taka yfir slöngurnar og auka friðinn í akstri svo menn eiddu ekki öllum kvöldum í bætingar og slöngu skipti .Það eru nokkrir félagar mínir komnir með þessa biltingu undir hjá sér og þetta er því miður aldrei til friðs þetta einfaldlega míglekur og menn eru alltaf að lagfæra þetta eitthvað til að blaðran haldi lofti . Ég segi fyrir mína parta að mig langaði í svona græjur í mín dekk en ekki lengur og svo er annað að þetta kostar eins og ca 4 -5 .. slöngur og þá er þetta orðið mjög tæpt . Ég prófaði að aka á slöngu dekkinu mínu í allt sumar á u.þ.b 3 pundum í öllum aðstæðum og það hefur ekkert sprungið eða dældað felgur og síðan í maí hef ég einu sinni bætt lofti í þau .

kosturinn við þetta er að maður ekur um á 1 pundi og nær heiftarlegu gripi en ekki það mikklu að maður á slöngu sé skilin eftir í duftinu vegna þess að hann er með 3 pund í dekkinu hjá sér .Þá myndi einhver segja en þetta springur ekki hjá þér í miðjum túr , en staðreindin er sú að ég hef farið í túra með mönnum sem koma á þessari biltingu loftlausri heim og þá er allt fúttið farið úr þessu ?,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,
Elvar Jónsteinsson skrifaði þann 07.10.2010 21:03
Ég Einir og Helgi tókum vel á því um síðustu helgi og lúkkuðum nokkuð feskir þrátt fyrir fáa enduro túra í haust en við ókum í hrikalegu landslagi og eftir túrinn hvissaðist út að Gunni H sjálfur faðir hardendurósinns hefði ekki lagt í þennan slóða og snúið við á miðri leið og ekki klárað harða kaflann sem við ókum sem rensli. Helgi TM !!!! byrjaði þennan túr á sprungnu vegna þess að þegar átti að skipta um slöngu var frammöxulinn gróinn undir TM -ið og ég verð meira hrifinn af TM með hverjum deginum og var hjólið hjá helga bara betra í stírinu við það að aka á loftlausu ..

Við æfðum Blazusiakinn og Einir var etthvað riðgaður en va rfljótur að slípast til og svo var tekið rosalegt samhliða reis og þar hefði enginn 4-stróke maður elt okkur af neinu viti .

sumir lækirnir voru vaðandi grófir og reið einir inn í þá með 30 pund í afturdekkinu frá dekkjaskiptum síðan fyrr í sumar en hann hleipti svo úr dekkinu niður í 3 pund og þá fóru hlutirnir að gerast . Reyndar heyrðist í einu gilinu (Nú er ég hættur ) en það bráði fljótt af og menn sigruðu gilin með sóma . Konungur þúfnanna kveður.......

Elvar Jónsteinsson skrifaði þann 24.08.2010 23:36
Landslið Íslands í Moto-Cross var skráð í dag á Moto-Cross of Nations sem fer fram í Colorado USA 25. og 26. september. Breyting varð á landsliðinu á síðustu stundu eftir að Aron Ómarsson dró sig til hlés. Gylfi Guðmundsson #9 tók sæti hans ogmun því keppa fyrir Íslands hönd í MX1 flokki, Eyþór Reynisson í MX2 og Hjámar Jónsson í MX Open.
Elvar Jónsteinsson skrifaði þann 21.08.2010 10:01
Elvar Jónsteinsson skrifaði þann 16.08.2010 17:19
Ég heyrði í morgun í Óla Gísla gömlum í íshokky félaga mínum en hann var að keppa á akureyri í B flokk um daginn. Óli var bísna sperrtur og búinn að vera í mikilli grjót tínslu og stífum æfingum á suðurlandinu síðustu vikur og alveg til í slaginn.Svo rann stóra stundin upp og gamli reið úr hlaði á Hondunni sinni og nú skyldi það ganga, kominn í grjótlausa braut og hondan eins og hugur manns. Í upphitun kvistaðist hann í nett búgí í vúbsa kaflanum og tognaði í læri en lét það ekkert á sig fá og hélt áfam . Svo í fyrsta heati teigði karlinn á öklanum og var orðinn nett laskaður og var farinn að afskrifa fyrstu 2 sætinn. En aftur lagið óli af stað og náði góðum hraða en þá dundi ógæfan yfir og hann tognaði á ullið og nú þurfti hann að draga verulega úr hraðanum til að klára en kom samt ekki seinastur í mark. svo sega menn að það sé auðvelt að aka Motocross !!!!!!!

Elvar Jónsteinsson skrifaði þann 16.08.2010 01:47
Við rendum í kvöld upp á brún ég Helgi og Einir. Helgi er ný búinn að skipta Gasinu sínu niður í TM 300 2002 kross tuggu og er helvíti sáttur með það . Ég greip aðeins í lufsuna hjá honum þegar hann var að skíta á sig við að komast upp síðasta skaflinn og vitið menn þetta er ó akandi með öllu plisandi fúsk og gírun fyrir 240 km klst og togið niðri er sært saman með gjöfina í 20.000 snú á mín og vaðandi kúplings pest . frammbremsan virkar stundum og stundum ekki og grípur í þegar síst skyldi . Í græjunni er nýja símastaurafjöðrunin frá öhlins og er þess beðið að hún fari að spúga sislandi 2,5 vökva yfir allt hjólið svo menn geti skipt vökvanum í 5 og eitt milligjöfinni frá Gasinu í pakkdósir framm eftir næsta ári . Það er kínverkst afturdekk á því og eru samreiðarmenn í stórhættu þegar gúmíkubbarnir koma fljúgandi þegar hóstað er í fjósið . hávaðinn er mikill en það er enginn innistæða á fullum snúning og það tók maður á reiðhjóli framm úr Helga á heimleiðinni slík var yfirferðin. Það reindar sauð ekki á hjólinu en það var vegna þess að það var ekkert vatn á því . Annars vil ég óska helga til lukku með gripinn og eins og hann sagði sjálfur " það er hrikalega kraftmikið" þegar hann var spurður um aksturseiginleika hjólsinns. Konungur þúfnanna kveður.......

Elvar Jónsteinsson skrifaði þann 09.08.2010 23:06
Við fórum í púkaferðina hjá kka í kvöld ég og Rakel . Þetta var alveg meiriháttar rensli og góð mæting , það var ekið frá draflastöðum og inn í gegnum skuggabjargarskóg eftir fallegum moldarslóða . Allir völdu hraða við sitt hæfi og óku í um klukkutíma komu svo aftur á túnið á draflastöðum . Eftir túrinn var grillað og spjallað fyrir utan hlöðuna á bænum Ég vil þakka kka fyrir okkur og þetta frábæra framtak.



Grillið vakti mikkla lukku hjá eldri kynslóðinni og rendu menn slöngunum Katalina nkoko style án þess að tyggja konungur þúfnanna kveður..
Elvar Jónsteinsson skrifaði þann 06.08.2010 01:35
Jæja það eru breytingar á eignarhaldi á nokkrum hjólum sem ég vildi koma í loftið. Bubbi er kominn á 06 gas trial og búinn að selja 04 gasið . Unnar er kominn á 450 09 husaberg og lord lordanna Gunnar Hákonarsson er búinn að sjá ljósið og er kominn á TM 300 2t 07 og það verður hrikalegt að keira með honum á þessu hjóli þvi ég sagði alltaf að 4 strókið væri að hamla getu lampanns en nú verður hann skeinuhættur og illviðráðanlegur .Svo var Einir að versla Beta 10 handa púkunum sínum og það eru stífar æfingabúðir frammundan þaar á bæ..

Elvar Jónsteinsson skrifaði þann 20.07.2010 22:07
Já já það er aðeins of mikið að gera þessa dagana og þá verður síðan undir í þeim slag. En ég er búinn að fara í nokkrar trialferðir með frændum mínum og er orðinn trial fíkill þetta er svo gaman .En aftur á móti hefur minna verið um enduro í staðinn en það stendur til bóta með haustinu þ.e.a.s ef maður nær einhverjum að vinum sínum með sér.

Ég var í einni af mörgum trialferðum um daginn og þá fór hjá mér pakkdós innan við vatnsdælu og það fór frostlögur inn á kassa. Ég reif draslið sundur og þá var vatnsdælu hjólið farið líka og við frekari athugun hafði bilunin byrjað þegar mótorinn í kæliviftunni fór. Ég kippti mótornum úr viftunni og sá þá að þetta var samskonar mótor og í flugmódelunum hjá þórði félaga og átti hann mótor á lager og við lóðuðum nýja mótorinn í viftustæðið og hann virkar fínt . Svo pantaði ég allt nýtt í dæluna hjá JHM sport og er í þessum töluðum orðum að raða því saman og svo er bara að fara að hjóla og nýta stutta íslenska sumarið því það lifir ekki að eilífu. konungur þúfnanna kveður að sinni
Elvar Jónsteinsson skrifaði þann 06.07.2010 10:02
Ég fór með Hlyn, Hinrik og bubba í skemmtilegan trial túr í gær og þessi var alveg frábær. Ég hafði ekki enn þá komist í almennilegt rensli með öðrum trial félögum og var þetta því jómfrúar túrinn utan bæjaarmarkana. Við fórum í brautina sem Rútstaðabræðurnir lögðu mu síðustu helgi og hún var erfið og mjög krefjandi og stóð fyllilega undir væntingum . Mennn voru með góðaskapið meðferðis og eftir brautina var ekið í um 2 tíma þrautakóng og það litu mörg tilþrif dagsinns ljós í þeim æfingum . Nú er maður orðinn illa smitaður og verður tekið trial næstu vikurnar til að koma ser í form svo menn verði ekki eftibátar í næstu ferðum ..konungu þúfnanna kveður..

Elvar Jónsteinsson skrifaði þann 01.07.2010 19:10
Það er mikið að gera þessa dagana og maður fer frekar að hjóla frá 9 til miðnættis heldur en að leggjast á netið og síðan undanfarið ber þess merki en við Einir tókum harðasta túrinn til þessa á leynistaðnum og sá stóð fyllilega undir væntingum og það hefði ekkert four stroke hjól komist þessa svaðilför þessi var too stroke only. Við Helgi rendum svo upp á topp í gær og það er skemmst frá því að segja að Helgi hafði legið í bleiti um síðustu helgi og var enn þá ó ökufær og gat ekki einu sinni ekið breiðan slóðann skammlaust og var fjólublárri en nokkru sinni á hörund . konungur þúfnanna kveður ....

Elvar Jónsteinsson skrifaði þann 20.06.2010 13:48
já já á laugardaginn var frábært enduromót haldið á svæði KKA á Glerárdal . Veðrið var logn sólarlaust og 20 stiga hiti aðstæður og öll umgjörð var til sóma það var keppt í hefbundnum flokkum þ.e.a.s Kvenna 85 +40 Baldursdeild og meistaraflokki flæði á brautum var aukið til muna miðað við síðustu ár og fjöldi hringja jókst umtalsvert frá fyrra ári

Markmiðið hjá mér var 6 sæti í A flokk og ég endaði í 5 og er helv sáttur með það sæti . Ég gerði nokkur mistök eins og gengur en náði að halda áfram og salla in hringi án þess að stoppa mikið ég vil þakka Eini og Helga fyrir aðstoðina það er ekki hægt að taka þátt í svona móti á aðstoðarmanna .

svo var bara gleði í lokinn og ekki skemdi soundið í síðasta hring þar sem ég missti aftari kútinn og voru óhljóðinn svakaleg . Ég vil líka þakka sérstaklega mönnum eins og Gunn H , Stebba Gull , Unnari , Sidda og Fjalari og öllum starfsmönnum KKA fyrir frábæra braut og góða umgjörð
PS lastið fá pissudúkkurnar sem komu á svæðið leist ekki á brautina og gerðu veður út af því og drógu sig úr keppni og ætluðust til að aðrir gerðu það sama og það er sorglegt að þessir menn eru stór nöfn í Enduróinu en hér eftir er bara ekki hægt að líta upp til þeirra eða að taka marka á þeim af neinni alvöru
Konungur þúfnanna þakkar fyrir sig ...............

Glaður og þreittur í lokin
Elvar Jónsteinsson skrifaði þann 14.06.2010 19:35
Við fórum í brautina á laugardaginn ég og 3 gasmenn og þetta rensli var ekki til afspurnar því öll gösin hreinlega héngu saman á bensínu einu saman og voru skiddplötur og afturbretti fljúgandi um svæðið meira um það síðar.

Elvar Jónsteinsson skrifaði þann 10.06.2010 23:57
já já ég fann hér myndband frá enduróinu á akureyri 2008 og þar er bræðurninr Unnar og Víglundur að keppa og þarna var brautin Enduro með öllu svona nett Gunna og Finns likt af henni það er hálf sorglegt að ég keipti mér ekki hjól fyrr en vorið 2009 og eftir þetta eru allar brautir að fletast út og maður misti af þessu öllu saman ....svo segist unni ekki geta ekið enduro á hondunni karlinn er á kafi í hjólaskóflu dekkjum á myndbandinu góða skemmtun.
Elvar Jónsteinsson skrifaði þann 10.06.2010 19:04
Elvar Jónsteinsson skrifaði þann 09.06.2010 23:39
já já það er bullandi uppgangur í klúbbnum þessa dagana ég og helgi ökum 3-4 sinnum í viku og steini eitthvað álíka. Svo er það Einir hann viðraði gasið á sumardaginn fyrsta og er búinn að vera rúmar 8 vikur að skipta um olíu á aftur demparanum ( hann mælir með öhlins) og í gær var karlinn að umfelga og það endaði svona

já og svo er það Þórður 350 hann er búinn með higlightið í sumar en hann rendi u.þ.b. 3 km innanbæjar í fyrradag og er því kominn langt framm yfir kvóta síðasta árs og ætlar að láta þetta duga í sumar.

jæja það er komið að benna hann hafði þó vit á því að hann vissi að sumarið myndi ekki duga honum í að skipta af nagladekkjunum og keipti þá þjónustu en svo ætlaði hann að fara hjóla og komst 150 metra innanbæjar ók á rörbút og kvistaði hann í gegnum vatnskassan og bergurinn er úr leik og ef að hann hafði ekki dekkjaskiptin af þá er hann alveg að fara að hafa tíma til að gera við kassan í sumar. Það eru sko engir aukvissar sem telja klúbbinn en ég verð að segja Guð launi Helga píku því ef að hann hefði ekki keipt sér hjól og hjólað með mér í sumar væri ég alltaf einn og það er bara skemmtilegra að taka rensli með einhverjum konungur þúfnanna kveður...
Elvar Jónsteinsson skrifaði þann 06.06.2010 23:57
Það verður glatt á hjalla 19 júní á Akureyri þegar önnur umferð í Enduróinu fer framm á svæði KKA . Vonandi verður landstækkunin gengin í gegn þannig að keppnin fari eingöngu framm í karga þýfi og drulluskurðum . Ég skráði mig til þátttöku og ætla að berast með straumnum eins og belja ný sloppin út að vori .Svæðið er á heimsmælikvarða og þarf að leita alla leið til Rúmeníu til að finna jafn fallega moldarslóða og mýrar sem gleðja Enduro mannin í hverjum hring sem hann ekur . Þetta er svipað og gullfiskur í búri maður sér alltaf eitthvað nýtt þegar maður byrjar nýjan hring og verður bara glaðari og glaðari eftir sem á hann líður . í fyrra keppti ég á 530 ktm og gekk vel í fyrri umferð en stífnaði svo upp í seinni og varð að hætta . í ár ætla ég að vera á ktm 300 og er búinn að hjóla mikið meira en í fyrra þannig að ég ætti að skila mér betur í gegnum brautina en í fyrra en svo er það dagsformið sem ræður ferðinni . Við vonumst til að sjá sem flesta í keppninni en hafið það hugfast að Enduro keppnir eru fyrir enduro menn sem fæstir aka motocross þannig að þær eiga ekki að vera eins og motocross brautir en sjálfsögðu eru motocross menn velkomnir í svona gigg en ekki vera skælandi þó þú náir ekki að máta 5 gírinn í brautinni og vaskassin hjá þér sé eins og Geysir ný búinn að innbirgða 150 Kg af sápu þetta er enduro !!!!!!!! . Konungur þúfnanna kveður .....

Mýrinn var svo falleg í fyrra og þetta gaf manni svo mikið .
Elvar Jónsteinsson skrifaði þann 03.06.2010 00:39
Við Einir vorum að sníglast í kjarnaskógi um daginn og hittum þar Egil og óla og spurðum þá út í hjólabrautirnar sem er búið að leggja um skóginn. Það varð svo úr að þeir buðu okkur í netta Down Hill kenslustund og við þáðum það með þökkum . Ég smalaði góðum hóp af vitleysingum og við fórum í kvöld kl 21:00 og hittum dempara mennina á dýru hjólunum í kjarnaskógi . Hópurinn var þéttur Helgi ,Þórður þrí fiffftýý´´y , Ég , Garðar tengda pabbi Helga og Ágúst bróðir þórðar.Við smöluðum allskonar hjólum og var hjólið hjá garðari valið mesta raritetið en það bauð uppá sófasæti með kögri stillanlega frammdempara , chopper stýri , og shimano 21 gíra skiptingu með yfirliggjandi skipti gaffli svo eitthvað sé nefnt

Garðar alsáttur á Downhill græjunni
Svo hjóluðum við af stað og ferðinni var heitið uppá klappirnar fyrir ofan kjarna og svo átti að taka reisið niður hjólastígana en við vorum varla lagðir af stað niður á við þá sprakk á einni Downhill tuggunni og menn úr báðum hópum voru vel undirbúnir fyrir slík óhöpp þ.e.a.s þeir voru með auka slöngur og við vorum með Trivial og tókum létta spurningakeppni á meðan skipt var um slöngu


Þegar mesti brattin var búinn fóru dempara mennirnir loksins að halda í við okkur nýliðana sem þurftum bara að treista á flexið í stellinu og þá tók við einstígi í þykkum skógi og inn á milli voru timbur brýr sem vöktu mikkla lukku og varð brautinn meira og meira krefjandi en jafnframt skemmtilegri

Þetta var alveg magnað og menn glaðir í lok ferðar og þær eru fáar brautir sem ég hef hjólað sem eru jafn gefandi og þessar leiðir í skóginum.

Það voru nokkrar biltur í þessari ferð en eingin sem lagði menn og hjól lengi . Takk kærlega fyrir okkur konungur þúfnanna kveður að sinni......
Elvar Jónsteinsson skrifaði þann 30.05.2010 22:26
Ég vil hvetja alla æsta Hardenduro unnendur til að fara inn á síðuna hjá jonna jonni.is og skoða fleiri myndir af sýningunni mjög flottar myndir . Ég er svo að fá góðar myndir teknar í návígi í læknum og fleiri stöðum og hendi þeim inn fljótlega.

Mynd tekin af jonni .is

3 Glaðir í lok sýningar ...ólýgin sagði að miðjumaðurinn ætli að fá sér KTM
Elvar Jónsteinsson skrifaði þann 29.05.2010 14:36
Hardenduro sýninginn Klofinn Mótor var haldin í blískapaveðri á föstudagskvöldið á svæði KKA á Glerárdal.Skráðir voru 12 en þegar á hólmin var komið mættu 9 og það eru því 3 sem fá búðingastimpilinn ó keipis og verða kallaðir það það sem eftir lifir sumars.Allir sýnendur mættu með góðaskapið og myndaðist strax góð stemming meðal sýnenda. Það var tilkynnt að það er ekki hægt að enda í 1 sæti í þessari sýningu ef menn sleppa hliði og þar af leiðandi var nokkuð um það að menn reyndu við sömu hliðin aftur og aftur til að vera gjaldgengir í sýninguni.

Mynd : Jón Hjalltasson
Herlegheitin byrjuðu með hlaupandi dedstarti og tók grefsleg brekka við mönnum í byrjun en einn ellilíeyrisþegi fékk að byrja í miðri brekku og það var naglinn Gunnar Hákonarsson sem var mættur á Hólmfrýði sinni ný járnaðri með trelleborg nöglum var karlinn fyrstur af stað og var mjög ferskur fyrstu 2 hringina en svo fór eitthað dala hjá honum týndi hann lungunum í miðjum grjótkaflanum og svo rifnaði hjá honum pakkning í vélinda sem varð til þess að hann skilaði síðdegiskaffinu aftur til náttúrunnar og játaði sig sigraðan með 5 hringi ekna.

Mynd : Jón Hjalltasson
Við Helgi höfðum lagt mikkla vinnu í að gera brautin skemmtilega fyrir sýnendur og áhorfendur og þótti brautinn krefjandi og skemmtileg . mesta púðrið fór úr mönnum í staurnum sem menn þurftu að beyja sig undi í læknum og svo í grjót brekkunni við ræsið en þar voru áhorfendur með kaðal til að redda mönnum sem klikkuðu á brekkunni í fyrsta rensli .

já staurinn grandaði nokkrum og þurfti lægni til að halda gangi í hjólinu meðan menn beigðu sig undi hann og það var ekki gott að vera með dautt á tugguni undir miðjum staurnum .

Mynd: Jón Hjallta
Við smíðuðum lík vegasalt og var hægt að velja um hjólaskófludekk eða vegasaltið og það var Þorsteinn Hjallta sem valdi alltaf dekkin en aðrir voru eftirbátar hanns í þessari þraut .

Mynd: Jón Hjalltasson
Sem sagt vel heppnuð sýning og menn frekar glaðir með frammtakið. Í upphafi mætti hugmyndin nokkuri mótspirnu hjá rótgrónum klausturs aðdáendum en þess má geta að um 25 % að hjólunum á kaustri eiðilögðust en þessi sýning hefur eina kúplingu á samviskunni og dæmi nú hver fyrir sig . Vegna mikils áhuga á uppátækinu var ákveðið að halda 2 sýningar í viðbót í sumar og næsta sýning mun bera nafnið Rifin Stangarlega og fá þeir sem mættu í fyrstu sýningu forgang í skráningu en um 15mans er limmitið á sýnendum .Ég vil þakka öllum sem hjálpuðu okkur að frammkvæma þessa sýnigngu og ég birti úrslitin hér fyri neðan . Konungur þúfnanna kveður að sinni...
1 sæti Bjarki Honda 250 7 hringir
2 sæti Baldvin Ktm 200 7 hringir
3 sæti Elvar Ktm 300 7 hringir
4 sæti Þorsteinn Ktm 200 6 hringir
5 sæti Jonni.is kawasaki 250 6 hringir
6 sæti Gunnar lýsi H Yamaha 290 5hringir
7 sæti Helgi píka Gas 300 4 hringir
8 sæti Björn ómar kawasaki 450 3 hringir
Takk fyrir þátökuna drengir þetta var æðislegt.................
Elvar Jónsteinsson skrifaði þann 28.05.2010 00:35
Ég og helgi lögðum brautina í kvöld og ég vil benda mönnum á að hún er lokuð framm að sýningu. við förum í fyrramálið og setjum upp starthliðið og sponsor skiltin og það er gaman að segja frá því að birkir í K2M gaf verðlaun fyrir 1-2-3 sætið og ég mæli með að menn setji Motul olíu á tugguna fyrir keppnina og 130 gráðu frostlögin frá motul því þetta er alvöru keppni og það verða átök að komast hringinn . Við giskuðum að hringurinn taki um 10 mín og við ætlum að aka í klukkutíma .Já það verða nokkrir sem sjá eftir því að hafa ekki skráð sig í þessa sýningu. En það er mikill áhugi á þessu giggi og vonandi er þetta startið að einhverju meiru en ég hvet alla til að mæta með góðaskapið og vegna þess hve brautin er tæknileg erfið þá hvet ég áhorfendur til að aðstoða sýnendur í vanda í brautinni og mæta með kaðla og ná smá stemmingu í þetta og lifa sig inn í þetta...........konungur þúfnanna kveður ....

Elvar Jónsteinsson skrifaði þann 25.05.2010 23:18
Ég vildi bara minna fólk á Hardendurosýninguna á föstudagskvöldið á svæði KKA. Við erum byrjaðir í rólegheitum að byggja upp brautina sem verður sú skemmtilegasta sem hefur verið sett upp norðan heiða .Við ætlum að breyta sýningartímanum í kl 21:00 og keppendur verða að vera mættir kl 20:00 .uppi á dippinum við púkabrautina Það verður enginn svikinn af þessari sýningu og er mikið í hana lagt fyrir sýnendur og áhorfendur. brautinni er þannig fyrir komið að áhorfendur geta staðið á einum stað og séð um 80-90 % af brautinni á þess að færa sig til . Sýningar fyrikomulag fer eftir fjölda sem sagt undir 8 einn í einu og tímamæling eða yfir 10 og hlaupandi dedstart og allir í einu og taldir hringir. Það eru engöngu tvær reglur í þessari sýningu og þær eru ef þú sleppir hliði eða þraut ert þú úr leik ef þú snýrð ekki við og ferð í gegnum hliðið og seinni reglan er þessi sýning verður ekki flautuð af í miðjum klíðum út af skælandi mönnum sem eru búnir að drulla í buxurnar og finnst þrautirnar krefjandi .

Helgi að búa til þraut í læknum sem þarf að fara með hjólið undir

Þessi eru alltaf skemmtileg og svo verða líka liggjandi dekk

Hér reynir á að prjóna á réttum stað og missa ekki afturdekkið til hliðar


Þessi skurður var í fyrra nefndur af Finn bónda og það nafn hefur loðað við hann síðan..En sem sagt sýningin hefst kl 21:00 og svo verður pylsu partý upp við hús á eftir og pulla og kók á 200 kall skráning er opinn framm á fimmtudag í síma 8955448 Konungur þúfnanna kveður....
Elvar Jónsteinsson skrifaði þann 20.05.2010 23:28
Auk mannana sem eru skráðir þá eru nokkrir sem vilja sjá þessa menn sem eru upptaldir hér fyrir neðan í þessari skemtilegu þrauta braut og er skorað á þá hér með að mæta .
Árni Grant husabergsson
Þorsteinn dældað púst hjaltasson
Knútur veghefilsson
Guðmundur hannesson frostsson
Bjarki 670 hondusson
MR Hard
Kári Tm jónsson
Valdi 270son
Viggó örn hardsson
Kristófer finnson AKA finnur junior
Þröstur flatlendingur Einirsson
Bjarni hrafn ásgeirsson
Haukur #10 nítrósson
Taddy Blazusiak
David knight
og bara allir sem eiga hjól yfir 125 cc og eru 18 ára
Til að einfalda grillveisluna á eftir þá verða grilluð pulla og gos á 200 kr til sölu upp við hús eftir keppni svo menn þurfi ekki að taka með sér eitthvað ætilegt..
Elvar Jónsteinsson skrifaði þann 18.05.2010 00:45
Já blóðþyrstu hardenduro aðdáendur þið lásuð rétt föstudagskvöldið 28 maí verður haldinn hardenduro sýninginn Klofinn Mótor á félagssvæði KKA .Sýninginn felst í því að ekið verður í erfiðum aðstæðum á mörkum þess menska og menn verða tíma mældir með skeiðklukkum . Hver þátttakandi fær að reyna við þrautabraut tvisvar sinnum og gefur besti tíminn samanlagt af sér nafngiftina MAÐURINN MEÐ EISTUN. Já góðir lesendur það verða fljúgandi stimpilstangir vaðandi tvígengis fíla í hverjum drullupolli og heiftarleg aspest gufa af hverri kúpplingu sem kemur við sögu í þessari sýningu þú vilt ekki missa af þessu !!!!!!!!!!!.

Skráning í þessa fyrstu hardenduro sýningu hefst á morgunn í síma 8955448 og stendur framm á fimmtudaginn 27 maí og kostar ekkert . Í sýningunni verða menn á eigin ábyrgð og aldurstakmark er 18 ár og blöðrur undir 125cc verða ekki leyfðar ath allur annar auka búnaður er leyfður svo sem búningar ,GPS ,nagladekkinn sem finnur keppti á um árið ,trial hjól,konur, og stórir bensíntankar .Sýninginn hefst kl 20:00 og sýnendur sem hafa skráð sig eru beðnir að mæta kl 19:15 uppi á dippinum við púkabrautina . já það verður ekkert (hross countrý )á Akureyri 28 maí Konungur þúfnanna kveður að sinni

Eftir sýninguna geta menn komið með og pylsur og við KKA menn reddum nokkrum grillum og höfum gaman upp við félagsheimili KKA ef veður leyfir........
Elvar Jónsteinsson skrifaði þann 14.05.2010 21:24
Arnar frændi leit á mig í gær og tók með sér framm og afturpípu af 400 hjólinu . Arnar hreinsaði aukahluti innan úr aftari kútnum og skipti um ull í honum á meðan ég smíðaði power bombu í fremri pípuna Arnar tók svo og póleraði allt pústið og smellti því svo undir hjólið . Hann var búinn að setja hjólið á supermoto dekkin og fór svo og aka þrykktur í hón leður gallanum sem allar kerlingar dreymir um að komast í .hjólið var sprækara og soundaði mikið betur á eftir. Nú vantar honum bara menn til að aka með á supermoto og menn endilega að hafa samband við kappa ef þá langar á rúntinn gsm hans er 8683829.....


Gullfalleg heima smíðuð powerbomba liturinn er svona á pústinu því það var að hitna og blánaði þegar hitinn var orðinn passlegur..
Elvar Jónsteinsson skrifaði þann 13.05.2010 08:54
já við toppuðum harða túrinn frá í fyrra og erum búnir að fara þann allra harðasta enduro túr sem farinn hefur verið á íslandi á Enduro hjóli . Meðreiðar menn mínir voru helgi og einir og þessi var fyrir allan peninginn grjótin voru á stærð við SCANIU VABIS og lætin aftan við stírið var eins og menn riðu doberman hundi með beisli .Við ókum bæði HELL S GATE og Stairway to heven og þar mátti engu muna að helgi tæki himnastigan alvarlega og sæi ljósið í allri sinni dýrð en menn verða að passa að fara út úr stiganum á réttum stað annars enda menn í stuði með guði. Og það er skemmst frá því að segja að helgi er kominn á Gas Gas toostróke 300 cc og erum við nú allir á 2-t hjólum og spádómur villa þorra rættist því ég seldi fergusoninn minn í morgunn og er mikil eftirsjá í honum en hann á bara ekki séns í 300 ktmið þó að hann sé góður en villi þorri fór eitthvað öfugt í dæmið sitt því hann seldi 300 hjólið sitt og nú verður gaman að sjá á hverju kallin endar í hardenduróinu í sumar . Takk fyrir túrinn strákar .Konungur þufnanna kveður.........

Elvar Jónsteinsson skrifaði þann 05.05.2010 23:52
Það var fundur í KKA svæðisnefnd í kvöld og sumarið lítur hrikalega vel út. Það er komið mikið af timbri til að tæta niður og nóg af hreinni mold til að bera i motocrossbrautina. Það voru 10 - 15 manns að æfa sig í brautinni og skapaðist góð stemming .Við erum vongóðir um að fá stækkunina á Endurobrautinni og það er komin slatti af efnivið til að búa til enduro cross brautina. Þannig að ég veit bara ekki hvaða klúbbur ætlar að skáka KKA þetta sumarið . Við verðum með enduro mót í júní og motocross mót 7 ágúst .Svo er hugmynd að henda inn 1-2 stuttu hardenduro mótum fyrir þá sem ná ekki úrbræðslunni í ( hross- countrý) kúreka keppninni mikklu .Eftir fundin ókum við helgi svæði þvert og endilangt og enduðum í læknum ......Konungur þúfnanna kveður..
Elvar Jónsteinsson skrifaði þann 05.05.2010 01:03
Þessi var magnaður við fórum í lækinn og brautina og ókum hrikalega . Lækurinn var í leisingu og var orðin eins og beljandi fljót á móti okkur. Brautinn er öll að þorna og verður skemmtilegri með hverjum deginum. Helgi var flottur og er að detta í formið og hann lagði kuntuna í alla læki og mýrar sem urðu á vegi hans og var fallegt að horfa á þegar hann snaraðist framm fyrir sig og fór allur á kaf í risa drullu mýri og hvarf karlinn allur um stund .það var slatti af fólki á svæðinu og þetta er allt að vakna til lífsins .Nú er bara beðið eftir Eini og þá verður Gilið Hells Gate tekið í nefið öfugan hring en sennilega verðum við að snorkla yfir ánna til að hafa hana.Konungu þúfnanna kveður........

Elvar Jónsteinsson skrifaði þann 04.05.2010 19:48
Við Helgi la cunt ætlum í brautina um kl 21:00 á eftir ég hendi kanski inn myndum af því á eftir........
Elvar Jónsteinsson skrifaði þann 01.05.2010 00:20
Elvar Jónsteinsson skrifaði þann 29.04.2010 00:47
Það er mikið ekið og enginn tími til skrifta þessa daga. vorið er á næsta leiti og ég ek 300 hjólinu eins og ég fái borgað fyrir það . En það er annar sem ekur mikið þessa daga og það er steini og hann æfir aðalega í leyni ,þannig að maður þarf að halda sér við til að halda í kappann en ég á myndband af honum í einni leyni æfingunni í brautinni og eg stúderaði þúfurnar í kvöld sem hann ekur á þessu myndbandi og það er skemmst frá því að segja að þær voru teknar í nefið og tillti frammdekkið hjá mér aldrei í þannig að Steini verður bara að halda áfram að æfa sig enda maðurinn á vélarvana hjóli beint úr kassanum
PS hann á jú í höggi við KONUNG ÞÚFNANNA. he.hhe.....................
Elvar Jónsteinsson skrifaði þann 25.04.2010 00:28
Elvar Jónsteinsson skrifaði þann 22.04.2010 11:46
Elvar Jónsteinsson skrifaði þann 21.04.2010 19:14
Ég er búinn að aka töluvert í vikunni og við Einir skruppum með Helga la cunt í enduro brautina sem er öll að þiðna um þessar mundir. Helgi var að koma á þenna griðarstað enduro mansinns í fyrsta skipti og svæðið sveik ekki . Eftir um 20 mín var Helgi eins og sprungið silicon brjóst og hafði ekki neina lyst á íþróttablysum né lífinu sjálfu því hann var gerssaaammlleegga ooooooffffffffffffffffffff og blánaði á hörund um tíma og hafði einir á orði að þetta væri kanski komið nóg . En áfram var haldið og við keyrðum c.a 3/4 úr stóra hringnum og þá sagði Helgi þessa fallegu setningu þegar hann sá veginn aftur " ég hef ekki verið svona glaður síðan ég eignaðist barnið mitt ég helt að þetta væri mitt síðasta" svo var haldið heim á leið og allir sáttir við sitt en glaðastur var einir þar sem hann ók einu öflugasta 300 ktm hjóli á íslandi í fjærveru Gas Gas 250 .......

Svo fórum við helgi upp á mýrar í gærkvöldi og ókum á hjarni en þetta var lítið spennandi og ég er að verða nett þreittur á þessum hjarn akstri það er einfaldlega ekkert að gerast bak við stírið og lítið krefjand. Þetta er svipað að aka malarslóða eðan etthvað þaðan af verra!!.En við Helgi ókum í einn og hálfan tíma en gáfumst svo upp á leiðindunum og ókum heimleiðis.

Ég leit svo aðeins yfir 300 hjólið í gær og fann rifu á pakningu í vatnsgangi og reif motorinn strax og fékk pakningar hjá Kalla og skipti um pakkdós og legur í vatnsdælunni í leiðinni. Ég raðaði svo hjólinu saman aftur og setti lík sílicon hosur í allt vatnskerfið og sleit úr því vatnslásinn því það er hardenduro tíð frammundan og veitir ekki af eins mikilli kælingu og er í boði .Þannig að það er klárt í silicon túr í fyrramálið og þar verður ekkert ja vell bara hard og fyrstur til að skíta í hjálminn er aumingi og færa að þríf hjól félaganna. við verðum komnir uppeftir um 8 leitið og endilega allir að mæta og kynnast ógeði af vestu sort. Í fyrra kláraði benni berginn og kom hann heim undir einu mannsafli svo ég spái því að það verði engar húsaberg lufsur þetta árið en við skulum bíða og sjá ....Konungur þúfnanna kveður

Elvar Jónsteinsson skrifaði þann 16.04.2010 22:09
Það er engum blöðum um það að fletta en það er komið hjarn aftur til fjalla fyrir norðan og það gekk á með stórhríð í dag á AK. við Helgi og jafnvel Einir ætlum að kíkja á aðstæður á sunnudags morgunin en það hefur ekkert verið hjólað þessa vikuna vegna vinnu en þá hjólar maður bara meira þá næstu pís át .........

Elvar Jónsteinsson skrifaði þann 12.04.2010 19:00
Ég gleymdi seinni túrnum sem ég fór í gær en hann var Trial með Bubba frænda . Við skruppum upp í BM vallá og vorum að byrja að hita upp þega hjólið hans bubba kom fljúgandi í niga hib hib diskaflugi og brotlenti í steinbita hrúgu .

þá var drengurinn að fara að aka upp á steinbitana þegar blaðran festist í botni af notkunarleysi og kom í kýrstökkum fljúgandi með fyrr greindum afleyðingum.Græjan sveif fimlega eins og flugvélavængur eftir alla póleringu vetrainns og kom mjúklega niður en náði þó að rífa af sér aftur brettið en annað tjón var minniháttar og ekkert sem 1000 pappír nær ekki að pússa í fyrra horf .

Við þetta fór allur vindur úr okkur félögunum og við hættum fyrr en lagt var upp með . bubbi er búinn að smíða flotta festingu á peugot bílinn sinn og gott ef Arnar 400 hafði ekki hönd á suðuvinnuni en festingin er til sóma.

Takk fyrir túrinn bubbi Konungur þúfnanna kveður.............
Elvar Jónsteinsson skrifaði þann 11.04.2010 14:01
Ég og Helgi rendum í morgun niður á eyrarnar og tókum létt rensli . Það var brjálað rok og leiðinda veður þegar við ókum úr bænum . Helgi kom til mín hjólandi og náði á leiðinni á drepa á hjólinu og klára nýja geimirinn og brjóta annan standpedalan af í heilu lagi og það er um 1.5 km á milli húsana okkar . við redduðum þessu og lögðum svo af stað . Þegar við vorum á leiðinni niður á eyrar náði ég heiftarlegu bakkflippi framm af barði og lá í litlum skurði á eftir og helga var mikið skemmt . Svo ókum við áfram og eftir um 500m tók helgi frontflipp og vorum við nú hver sem annar og farnir að volgna. við litum svo á steipu klumpana og svo var ekið yfir ánna þar steinlá ég í miðri á og fór sjálfur allur á kaf . annars fór túrinn mest megnis í að starta hjólinu hans helga en hann er einn allra mesti brauðfótur sem ég hef á æfi minni kynnst .hann bara hefur ekki startsveifina niður. við litum svo á fjallabakið en það var allveg sama hvert ég fór með strákinn hann var aðalega liggjandi skorðaður milli þúfna eða reykjandi íþóttablys já þið lásuð rétt karlinn reykti nokkur blys í ferðinni sem sýnir að þetta var frekar slappt rensli því það er lágmarkið að í hardenduro túr að menn nái ekki andanum en ef menn geta reykt þá er landslagið hvergi nærri nógu grefslegt.

Helgi tók svo fallegt rensli aftur á bak niður malar hól og fleigði ktmið honum af trekk í trekk svo festi hann sig í ánni við árbakkan og þurfti konungur þúfnanna að bjarga íslandmeistaranum í íshokky upp úr pittinum . sem sagt glæsilegur túr og mikklar sviftingar yfir og út.......

Elvar Jónsteinsson skrifaði þann 09.04.2010 23:40
Við Einir vorum búnir að trassa það lengi að smíða skidplötu undir gasið hjá Eini . Svo var það í gær að við höfðum báðir tíma og smíðuðum loksins plötuna en við gerðum hana bara úr efni sem einir átti gamalli gólfáls plötu.Platan kemur bara nokkuð vel út og er þokkalega fær í hardenduroið . Svo sjóðum við bara meira við hana ef hún er ekki nógu grefsleg í það allra harðasta.

Svo er bara eftir að festa kvikindið á gas tugguna og fara að aka en einir er ekki enn komin með afturdemparan úr upptekt eftir að hann srengdi hann í lundskógi um daginn .

En svo var það aðalnúmer kvöldsinns þegar Einir var að setja ný handföng á gasið að karlin fékk blöðrur á hendurnar við að snúa þau upp á stírið . Eru menn ekki farnir að hjóla full lítið þegar þeir fá blöðrur á hendurnar og hjólið er ekki á heyfingu.

Elvar Jónsteinsson skrifaði þann 08.04.2010 18:58
Einir hard benti mér á flotta síðu með ýmsu gúmmulaði og þar eru menn búnir að hanna skidplatið til enda og þetta er eitthvað sem maður þarf að skoða fyrir átök sumarsinns.slóðin á síðuna er gofasters.com þessi mynd minnir óneitanlega á eina heimasmíðaða sem ég sá í fyrra á síðunni hardenduro.tk og ég lýsi hér með eftir þeirri mynd en sú var úr riðfríjum rúnnteini

Elvar Jónsteinsson skrifaði þann 06.04.2010 20:46
Hnífurinn renndi í þetta skiptið og leit á Mótocross brautina í Bolöldu. Ég leit á brautina með krítískum augum í þágu neitandans og frásögnin hér á eftir miðast við mann sem er að líta á svæðið í fyrsta skiptið.
Brautin liggur í Jósepsdal og er í u.þ.b 12-14 km fjarlægð frá borgarmörkum. Ekið er áleiðis upp á Hellisheiði og er afleggjarinn að henni til hægri þegar komið er að Litlu Kaffistofunni. Að öllu gríni slepptu þá mælir Hnífurinn með því að menn taki hjólin af við Litlu kaffistofuna og aki afleggjarann heim að brautinni á hjólunum því vegurinn upp að brautinni er torleiði fyrir minni bíla og ekki nokkrum manni bjóðandi sem hefur borgað sig inn í brautina.
Þá mundu margir segja það er ekki high season en Hnífurinn segir á móti brautin er opin ! og menn taka glaðir við peningunum þegar keyptur er dagspassi!! Þegar komið er inná svæðið dettur maður í nettan bænda fíling þegar bagga banda stemmingin tekur völdin og eru allar girðingar úr gulum bagga böndum sem afmarka brautir og bílastæði.
Ég sá ekki merkingu um það en mér sýndist 65-85 brautin vera á vinstri hönd þegar ekið er inná bílastæðið og er sú braut til mikillar fyrirmyndar. Efnið í henni er ágætt og brautin vel skipulögð og til þess fallin að ala upp unga og efnilega motocross menn.
Á svæðinu eru nokkrar byggingar og eru þær til sóma en það vantar aðeins skipulag á gáma menninguna sem eru á of mörgum stöðum að mínu mati og við þá standa olíutankar þannig að aðal hellulagða áhorfenda svæðið er með olíutank of nálægt og er hættulegur ef kviknaði í honum og stéttin væri full af fólki. Allar merkingar á svæðinu eru mjög góðar, leiðbeinandi og vel staðsett skiltin eru stór og á mannamáli.
Motocross brautin er staðett í einskonar gryfju að hluta til og hefur áhorfandi góða yfirsýn yfir brautina. Hún er vel skipulögðog hefur allt upp á að bjóða og í henni er úðara kerfi til að viðhalda raka.
Efnið í brautinni er timbur malar blendingur og er ekki upp á marga fiska að mínu mati en víkverjar fá samt hrós fyrir að geta gert braut úr svo slöppu efni.
Dagspassi í brautina kostar 1000 kr ísl og er seldur m.a. í Litlu kaffistofunni hnífurinn gefur brautinn 6 af 10 mögulegum og verða aðrar brautir settar undir hnífinn þegar þær verða á leið hans .
Elvar Jónsteinsson skrifaði þann 03.04.2010 11:27
Fallegt myndband af mínum manni þegar hann var í forustu í þessari erfiðu keppni og það átti engin séns fyrr en kallinn datt á svellinu.Ég varð samt fyrir örlitlum vonbryggðum með hells gate hvað þeir leyfa mikið áhorfendum að aðstoða ökumenn í erfiðustu köflunum , menn eru jú komnir til að sanna að þeir geti ekið án aðstoðar í erfiðustu keppnum heims og lélegri ökumenn komas því hraðar en ella í gegnum erfiðustu kaflana.....
Elvar Jónsteinsson skrifaði þann 02.04.2010 15:01
jæja við Helgi rendum upp í braut að kanna gripin hans helga og það gekk mjög vel utan þess að hjólið er leiðinlegt í gang heitt ,eins og að það fái ekki nóg bensín en við ókum brautina og ætluðum upp í fálkafell en þar drullaði Helgi í buxurnar og sagðist ekki komast lengra vegna mæði ( en þess má geta að Helgi varð íslandsmeistari í íshokký um síðustu helgi og þeir eru greinilega í flottu formi í hokkýinu strákarnir) en við vorum nákvæmlega 19 mín heiman frá og þangað sem helgi var off. En við ætlum að skreppa líka á morgun og ég verð með myndavélina með í för ef eitthvað skemmtilegt ber á góma...


Elvar Jónsteinsson skrifaði þann 01.04.2010 09:39
Ég verð nú bara að segja það að ef maður væri að fara að kaupa sér nýtt hjól úr kassanum þá er Gas Gas 300 að verða hrikalega líklegur kostur. Hjólin lúkka lang best á markaðnum í dag og eru aðrar sortir orðnar eftirbátar hvað það varðar en hvað sem hver segir þá eru nöfnin sem kepptu í WC 2009 ekki að skila tuggunni á efstu sætin og margir byggja álit sitt á enduro hjólum hvernig þau standa sig við erfiðar aðstæður í stóru keppnunum . En núr er 2010 módelið komið og ég spái að gas gas kræki í stærri bita af markaðs kökunni á þessu ári en svo er bara að sjá hvernig hjólið reynist við erfiðar aðstæður hér heima og kanski ef MR HARD hardenduro.tk myndi nú enhver tíma standa undir nafni og taka aðeins á nýja 250 hjólinu sínu þá myndi maður geta gert sér betri mynd af því hvort hjólið virkaði við harðar aðstæður ..Konungur þúfnanna kveður...............

Annars er allar upplýsingar að finna inn á jhmsport.is
Elvar Jónsteinsson skrifaði þann 30.03.2010 12:54
Arnar 800 hafði samband við mig og bað mig að setja inn videoklippur af sér í sleðaspirnunni fyrr í vetur og ég nenti ekki að hafa marga mottu tubara á forsíðunni þannig að þið sláið bara inn (Sleðaspirna feb 10 ) youtube og þá detta inn fullt af mynböndum góða skemmtun...........
Elvar Jónsteinsson skrifaði þann 30.03.2010 08:16
Ég tók nett skrúfkvöld í gær með Helga. Ég stillti demparana á 520 hjólinu við þrifum loftsíuna stilltum kúplinguna og bremsur svo festi ég hraða og tímamælirinn sem hékk utan á ljósinu og skipti um kerti sem hafði verið skrúfað í síðast með höndunum ég setti svo Motul 10 -40 olíu á hjólið en gamla olían á því leit út eins og af Zetor 1175 eftir 3 sumra notkun og síurnar eftir því. ´Við lækkuðum svo aftur demparan svo að Helgi næði niður og er hjólið nú nálægt því að vera reis reddí en ég þarf að stilla í því ventlana og við ætlum að opna mótor og tékka á kúpplingu . Svo er bara að henda nöglunum undir það og taka páskana með trompi

Svona leit gripurinn út beint frá bílasala alveg hel þrifinn og flottur

Svo þrifum við hjólið og smurðum alla bolta og hertum hjólið allt upp

Þá var hægt að snerta á gripnum og laga ýmsa hluti svo verður tekið almenilegt shine þegar við verðum búnir að stilla ventla og fleira og þá ætlar helgi að pússa upp riðbletti og sprauta þá . konungur þúfnanna kveður......
Elvar Jónsteinsson skrifaði þann 27.03.2010 01:45
Það gengur ekki vel hjá Taddy þessa dagana hann var í flottri forustu í Hell’s Gate en ók svo upp í enhverjar hæðir og lenti á svelli og flaug á hausinn og vankaðist og skemmdi hjólið töluvert og varð að hætta en svo var kappin skráður í the Tough One en var svo bannað að keppa af læknirsráði og var settur á pesilin . Við vonum nú að strákurinn fari að girða sig í brókina og haldi áfram að landa titlum

Elvar Jónsteinsson skrifaði þann 25.03.2010 20:06
Elvar Jónsteinsson skrifaði þann 24.03.2010 21:52
Djöfull er karlinn altaf flottur ég spái honum sigri í E3 í vor og sumar og ekki skemmir hjólið væri ekki nær fyrir Eini að vera á 530 sleggju með Wp dempara.....
Elvar Jónsteinsson skrifaði þann 24.03.2010 16:52
já já við Einir skruppum í skúrinn í gær og ég ætlaði að skipta um olíu á kúplingu og bremsum á Gasinu og Einir ætlaði að lagfæra Gasið sitt eftir níðsluprjón helgarinnar. En Einir prjónaði svo lengi og grefslega að hann þeitti pakkdósinni úr afturdemparanum í annað sinn á 4 mánuðum og þeir eru fáir ökumennirnir sem taka upp afturdempara 10 tíma fresti en slíkt er aflið og keirslumátinn á drengnum að eitthvað verður undan að láta. Ég lenti í brasi með vökvan á kúplingunni og kallaði til Tómas bubba Tryggvason og með honum var Rolf bróðir hans og við fórum yfir málið vandlega og komumst að því að sennilega var illafengna loftdælan frá Gunnari Hákonarsyni ekki að sjúga nóg til að vakum dælan sem bubbi á virkaði sem skyldi ,en dælan sú frá gunnari var í topp standi allir takkar heilir mælirinn í topp lagi og gunni greinilega nostrað við hana heima í skúr .

Flotta dælan frá Gunna altaf allt í topp lagi á þeim bænum
en svo við klárum nú Einir þá reif hann Gasið til grunna eins og þarf alltaf að gera við Gas þó maður sé bara að fara að setja á það bensín og Einir ætlar að láta Gulla flug kíkja á hann uss toooostrók hver kaupir þetta ,það er ekkert nema hávaði og vond likt af tostróke bbbaaaaaabbbba ababab abbbbbaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaa

toostróke svipurinn klikka aldrei , kemur altaf þegar þeir sjá brattar brekkur eða þegar springur hjá þeim afturdempari.....konungur þúfnanna kveður....................
Elvar Jónsteinsson skrifaði þann 22.03.2010 15:41
Ég rendi eftir vinnu á Trialinu og tékkaði á leynistaðnum og hann stóð undir væntingum áin hefur að mestu rutt sig og ég gat ekið eftir henni upp undir foss. Það er altaf jafn gaman að fara þangað og slást við grjótin og vatnið og ekki spillir fegurðin í gilinu . en það var samt öðruvísi að fara á Trialinu það vill bara aka í erfiði og grip litlum grjótum þannig að þetta var auðveldara en á Endurohjólunum og verður gaman að drösla Eini þangað um næstu helgi og sjá hann grenjandi meðan ég verð hoppandi á afturdekkinu...pís át .........................


Elvar Jónsteinsson skrifaði þann 21.03.2010 20:52
Nýja síðan komin í loftið vonandi líkar ykkur hún jafn vel og gamla síðan það eru nokkrar breitingar á þessari og verða fleiri þegar framm líða stundir ég vil einnig bjóða aðstoðar ritstjóran Mcqueen velkominn til starfa og mun hún vonandi auka fjölbreytninan í skrifum til hagsbóta fyrir íslenskt Enduro . En það þarf enginn að efast um það að teamsilicon.is er Hardenduro síða.. konungur þúfnanna kveður...........
Elvar Jónsteinsson skrifaði þann 21.03.2010 16:38
Við vorum með bústaðinn skógarsel um helgina sem er í vaglaskógi og auðvita voru hjólin tekinn með en í ferðinni voru ég og fjölsk Einir og fjölsk og Helgi p og fjölsk. Svo á laugardagsmorguninn rifu menn sig út og tóku skemmtilegt rensli inn í Lundskóg . Vegurinn inn eftir var þakinn snjó en hjarn hafði myndast undan snjósleðaförum . Við Einir vorum svo brattir að við settum á summerana fyrir túrinn og það reyndist í lagi því að færið var hart. Ég var á trialinu Helgi á 300 hjólinu mínu og einir á 250 Gasinu . Þetta reyndist gríðarlega gamaman og skógarslóðinn krefjandi á köflum . Helgi ók eins og hann hefði aldrei ekið neinu öðru en stóru toostroke og við tókum líka hard sexion en alltaf elti kallin og var bara brattur þegar heim kom. Þá fóru menn naktir í pottin og vel sáttir með daginn. Konungur þúfnanna kveður.......

Helgi er alltaf nakinn að neðan

Bara eins og hann hafi fæðst á 2-t hjóli

Sáttir og glaðir með renslið
Elvar Jónsteinsson skrifaði þann 09.03.2010 00:26
Við Steini skruppum í nettar Trial æfingar innanbæjar við ókum um og gerðum brautir og þrautir úr því sem á vegi okkar varð og þetta var eins og að byrja að hjóla upp á nýtt . Ég var helriðgaður eftir púðursnjó síðustu vikkna og ekki mikið hjólað vegna hans en í dag var 5 stiga hiti og mikið af snjónum bráðnaður og götur orðnar auðar og við fundun nóg af hindrunum til að slást við og fórum aðalega í grunnin td bunny hoppið akstur yfir dekk prjóna upp á vegg og veggja klifur . Þetta var alveg magnað og maður verður að fara að viðra Trialið oftar ef maður ætlar að halda í steina sem æfir Trial 1-2 sinnum á dag og nýja Gasið hans er magnað allavega þegar hann man eftir að skrúfa frá bensíninu hhehhe takk fyrir æfinguna Steini.............

Elvar Jónsteinsson skrifaði þann 06.03.2010 09:00
Á síðastliðin fimmtudag var skrúfkvöld hjá teamsilicon og var vel mætt af hjólamönnum . Á kvöldið voru boðnir leynigestir trial þjálfarar og gamlir meistarar .Sagðar voru sögur sannar og lognar og svo var cubik getraun þar sem við gerðum skúlpdúr úr ónítum títaníum pípum og menn áttu að giska á heildarfjölda cubika á pípunum sem reyndist vera 2140 og það var benni blikk sem sá í gegnum það að hjólið hans Unnars hafði verið tjúnnað í 490 cc áður en ég smíðaði pípuna í það. Svo var haldin fyrirlestur í póleringu hjóla og voru teinar í gjörðum sérstaklega teknir fyrir sem og stírisendar en menn voru brattir og líst vel á vorið og stækkunin á endurosvæðinu á eftir að ylja mörgu enduro hjartanu...Konungur þúfnanna kveður.......

Þessi ungi ökumaður er eitt best geymda leyndarmál Trilasinns á íslandi og þó víða væri leitað
Elvar Jónsteinsson skrifaði þann 03.03.2010 10:12
Til að fylgja eftir áhuga á síðunni breittum við nikkinu á síðunni í teamsilicon.is og Margeir snillingur uppfærði hana alla í nýtískulegra horf . Það eru mjög margir sem heimsækja þessa síðu í viku hverri og er gaman að sjá hversu mikill áhugi er á íslensku Endurói við ætlum einnig að koma til móts við Endurómenn með því að setja upp smáauglysinga kerfi og verða eingöngu motorhjól og hlutir því tengdir leyfðir í því kerfi ATH allar mottu auglýsingar verða teknar út það er nóg af síðum sem auglýsa færibönd

Elvar Jónsteinsson skrifaði þann 18.02.2010 17:59
Ég hef ákveðið í framhaldi af síðustu grein minni að taka mér rithöfundar nafnið Hnífurinn þegar ég slengi fram dómum hér á síðunni og mun ATH með allar þessar síður að 2 mánuðum liðnum og hvort eitthvað hafi batnað til betri vegar og ef menn vilja að eitthvað fari undir Hnífinn sem má betur má fara í Enduro heimi Íslendinga þá sendið mér línu á mailið smaverk@gmail.com og ég lít á málið .
Elvar Jónsteinsson skrifaði þann 17.02.2010 10:09
Nokkur orð um heimasíður hjólaumboða og dóma mótorhjóla á íslandi. En þannig er mál með vexti að við sem búum úti á landi þurfum oft að reiða okkur á netið til að skoða ný hjól ,varahluti,eða aukahluti fyrir hjólasportið og þá fer maður inná heimasíður umboðanna og þá mætir manni Zahara eiðimörkin í upplýsingum eða úrvali því það virðist enn þá vera árið 2007 í borginni þegar menn seldu svo mörg hjól og aukahluti yfir borðið að menn tóku ekki síma eða uppfærðu ekki heimasíðurnar sýnar. Tökum sem dæmi JHM www.jhmsport.is þar henda menn sjaldan inn fréttum en þegar litið er á linkinn VÖRUR eða FATNAÐUR finnst ekkert sem sagt á heildina litið síðan fær síðan 4 að 10 mögulegum. Næstur í röðinni er hjóla frammleiðandinn KMT www.ktm.is þar henda menn inn fréttum annað slagið en sömu sögu er að segja um fatnað eða aukahluti og er fullyrt á þeirri síðu að ktm verði orðinn stæðsti hjólaframleiðandi árið 2007 sem sagt fyrir u.þ.b 3 árum síðan og dómurinn er sá sami og síðast 4 af 10 mögulegum . Næst í röðinni er Nítró www.Nitro.is þar er allt annað uppi á teningnum síðan ágætlega uppfærð vörur og annað er verðmerkt og bara ágætis síða í alla staði . Nítró síðan er lika ein af fáum umboðs síðum sem býður mönnum uppá smáauglýsinga kerfi gott og vel síðan fær 8 af 10 mögulegum.Yamaha er nú komið til Artictruks og er þar ágætis sýða yfir mótorhjól www.arctictrucks.is en upplýsingar um fatnað og aukahluti á þeirri síðu verða uppfærðir síðar og mér finnst menn ekki kanski hafa kinnt sér hjólin til hlítar þegar er td talað um Yamaha WR 250 sé mjög léttbyggt hjól en blaut vigt á því hjóli er að detta í 135 kg sem sagt síðan fær 4.5 af 10 mögulegum .Á honda síðunni www.honda.is er lítið um fréttir á hjólum og ræður árið 2008 ríkjum og þar er sagt að honda ætli að girða sig í brók með 450 X fyrir árið 2008 . Sem sagt 2 ára gamlar upplýsingar en á síðunni eru reyndar verð á nokkrum hjólum en þau eru td honda 125 R 2007 og er talað um einstakt Tilboð á því hjóli 695.000 en einstakt tilboð heillar mig ekki á 3 ára gömlu hjóli . þegar grúskað er í aukahlutum poppa upp misgóðar upplýsingar erlendis frá og verð á þeim hlutum eru víðsfjærri íslenskum krónum síðan fær 3,5 af 10 mögulegum.Næstir undir hnífinn eru Suzuki www.suzuki.is þar eru engar fréttir af hjólum verðlistar eru frá 2008 og linkurinn fatnaður hefur ekki verið virkjaður enn þá ,já já síðan fær 3,5 af 10 mögulegum. Já ég þakka Unnari fyrir ábendinguna og held áfram að dæma nú er komið að MX sport www.mxsport.is þar er flest til fyrimyndar góðar og gagnlegar fréttir einnig eru allir hlutir verðmerktir og ágætis úrval síðan hlítur 8 af 10 mögulegum og mjakar sér upp að hlið Nítró síðunar á einkun.Síðast en ekki síðst er síðan www.pukinn.com þar eru settar inn fréttir af og til og vörur og varahlutir eru verðmerktir ágætlega en það vantar mikið af myndum við varahluti og verð á hjól og mikið af upplysingum eru komnar til ára sinna en ekki sem verst , síðan fær 7 af 10 mögulegum .Ef ég hef gleymt einhverri glæsi síðunni þá endilega látið mig vita en ég verð að segja fyrir mína parta eru umboðinn með allt niður um sig í heimasíðu málum en það skal tekið framm að ég skoðaði eingöngu þátt mótorhjóla inni á þessum síðum og aukahlutum/ varahlutum þeim tengdum...... Konungur þúfnanna kveður.......
PS .Svo er iðulega þegar maður pantar varahluti í pósti þá gleyma menn sem þú pantaðir hlutinn hjá að panta hlutinn að utan eða gleyma að setja hann í póst þetta er nánast regla en ekki undatekning.
Elvar Jónsteinsson skrifaði þann 17.02.2010 08:55
nokkrir trial gaurar voru fengnir til að prufukeyra nýja Gasinu og sýndu frekar flott tilþrif . Þetta er eitthvað sem maður þarf að læra !!
Elvar Jónsteinsson skrifaði þann 14.02.2010 14:35
Við Einir rendum í bogan um 12 leitið að kíkja á herlegheitin og það komst hreinlega ekki mikið að eftir að við gengum beint í flasið á Jóni JHM . Karlin var mættur með GG 300 2010 , Trial 280 2010 og tm 144 2009 og leit þetta mjög vel út hjá honum og GG hjólin með rosalegu lúkki gjösamlega búið að gerbreita lúkki og hönnun og eru aðrar tegundir hreinlega eftir bátar hvað lúkk varðar og Akureyringar létu sitt ekki eftir liggja því trial hjólið verður eftir á Akureyri hjá nýjum eiganda...........


á sýningunni var eitthvað að færiböndum en eins og Einir sagði svo lystilega að þau væru best í fiskvinslu..
Elvar Jónsteinsson skrifaði þann 14.02.2010 07:19
|
|
 |
|
|
|
|
|